Langar þig að taka þátt í HönnunarMars 2025?

Ætlaru að taka þátt í HönnunarMars og langar að sýna í Norræna húsinu? Við köllum eftir tillögum að sýningum á HönnunarMars 2025, sem fer fram dagana 2. – 6. apríl.

Norræna húsið hefur verið mikilvægur sýningarstaður á hátíðinni í gegnum tíðina  en undanfarið hafa staðið yfir framkvæmdir í húsinu sem nú er lokið og mun því vera mikið líf í húsinu á hátíðinni 2025!

Áherslur okkar árið 2025 verða á norðurskautið, sjálfbæra hönnun og handverk.

Við hvetjum sýnendur til að senda inn umsóknir á netfangið info@honnunarmars.is fyrir 17. nóvember. Frekari upplýsingar má nálgast með þvi að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

HönnunarMars 2022