Beiðni um bókun á rými

Hittumst í Norræna húsinu!

Norræna húsið býður upp á góða aðstöðu til funda- og ráðstefnuhalds í fallegu umhverfi. Fundarherbergi Norræna hússins nýtast vel fyrir minni fundi og málstofur sem og fyrir stærri samkomur, allt að 90 manns í sæti í einum sal. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og lögum okkur að þörfum hvers og eins. Fundarherbergin er hægt að bóka á Noona eða með því að senda fyrirspurn í tölvupósti til booking@nordichouse.is.

Skrifstofa bókana er opin þriðjudag til föstudags á milli kl. 10:00 og 12:00. 

Með fundarherbergjum er hægt að panta veitingar hjá info@lautrestaurant.is

Alvar

12 pax, 65″ skjár

Alvar fundarherbergi tekur 12-14 manns í sæti. Til staðar er 65 tommu skjár og lokað internet fyrir fundargesti.

Aino

8 pax, 65″ skjár

Aino fundarherbergi tekur 8-10 manns í sæti. Til staðar er 65 tommu skjár og lokað internet fyrir fundargesti.

Elissa Auditorium

Fjöldi gesta: allt að 90
Uppsetning: Ýmsir valkostir um uppröðun í boði (málþing, leikhús, kennslustofa, U-laga).
Tæknibúnaður: Lista yfir tæknibúnað má sækja hér

Tengiliður fyrir bókanir

Bókanir og frekari upplýsingar um rými má nálgast á booking@nordichouse.is eða í síma +354 898 7030.

Veitingar


Laut býður upp á hlýlega og vandaða matreiðslu þar sem árstíðabundið hráefni, nærumhverfið og sjálfbærni eru í fyrirrúmi, matreitt af virðingu fyrir norrænni matargerðarhefð.

Laut á Facebook

Laut á Instagram

Leiðsagnir

Við tökum á móti hópum í heimsókn eftir samkomulagi.