Viltu sækja um styrk fyrir norrænt menningarverkefni?

Ef þú hefur áhuga á að sækja um styrk fyrir tillögu þína að norrænu menningarsamstarfi eða norrænu menningarverkefni, þá býður Norræna húsið uppá ráðgjöf varðandi styrki hjá Nordic Culture Point (Nordisk kulturkontakt), sem er menningarstofnun Norrænu ráðherranefndarinnar.

Ráðgjöf fyrir styrki veitir Kolbrún Ýr Einarsdóttir – kolbrun (at) nordichouse.is

Nordic Culture Point

Styrktegundir sem hægt er að sækja um hjá Nordic Culture Point:

  • Mobility Funding er til að standa straum af ferðakostnaði fyrir stuttar ferðir (allt að 10 daga) ætluðum umsækjendum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum sem starfa við listir og menningu. Umsóknarfrestur er fjórum sinnum á ári.
  • Culture and Art Programme veitir styrki til einstaklinga, hópa og stofnana innan allra tegunda lista og menningar. Verkefni mega vera á öllum stigum og vera samvinnuverkefni að minnstakosti þriggja landa þar af verða tvö að vera norræn. Umsóknarfrestur er tvisvar á ári.
  • NORDBUK styður verkefni þar sem markhópurinn er börn og ungmenni (30 ára og yngri) sem skipuleggja og þróa verkefni. Verkefnið skal vera samstarf á milli amk. þriggja Norðurlanda. Umsóknarfrestur er þrisvar á ári.
  • Volt styður verkefni þar sem markhópurinn er börn og ungmenni undir 25 ára aldri. Verkefnið beinir sjónum sínum að norrænum tungumálum og samstarf barna og ungmenna innan norðurlandanna. Verkefnið skal vera í samstarfi milli amk. þriggja norrænna þáttakenda. Umsóknarfrestur er einu sinni á ári.
  • Network Funding (skammtíma/langtíma) styður menningarlega samvinnu milli starfandi listamanna og starfsmanna menningarmála á Norðurlöndunum og/eða í Eystrasaltsríkjunum. Umsóknarfrestur er tvisvar á ári (skammtímastyrkur) og einu sinni á ári (langtímastyrkur).

Aðrir norrænir styrkir

Styrktegundir sem hægt er að sækja um hjá Nordisk kulturfond:

  • Project Funding styrkir að norræn verkefni tengd listum  og menningu.  Verkefnið skal vera í samstarfi  milli amk. Þriggja norðurlanda. Umsóknarfrestur er þrisvar á ári.
  • Opstart styrkir uppbyggingu og þróun nýrra norrænna verkefna með skýr markmið. Umsóknir er hægt að leggja inn allt árið og er þeim svarað innan 20 daga.
  • Púls-áætlunin styrkir skipuleggjendur tónleika með norrænum listamönnum.
  • Globus (2020-2024) Nýr spennandi styrkur sem styrkir listamenn þvert á landamæri.

Fleiri norrænir styrkir