Bókasafn Norræna hússins er almenningsbókasafn og öllum opið. Bókasafnið hóf starfsemi árið 1969, ári eftir að húsið var vígt. Sérstaða safnins er að þar er eingöngu að finna bókmenntir á norðurlandamálum eftir norræna höfunda, en þó ekki á íslensku nema þýðingar yfir á annað norðurlandamál. Í safninu eru skáldsögur og fræðibækur fyrir börn og fullorðna, tímarit, dagblöð, hljóðbækur, tónlist og rafbækur ásamt norrænum grafíkverkum. Eitt stærsta safn landsins af norrænum kvikmyndum á DVD er í bókasafninu og til útlána. Safnefnið er á sjö tungumálum: dönsku, norsku, sænsku, finnsku, færeysku, samísku og grænlensku.
Einstaklingar, bókasöfn, skólar og stofnanir geta fengið safnefni að láni.

Þjónusta
Hægt er að leita að bókum, kvikmyndum og öðru safnefni bókasafnsins á www.leitir.is
Þeir sem náð hafa 18 ára aldri geta gerst lánþegar.
Lánþegaskírteini kosta 0 kr frá og með janúar 2025 og gildir í 1 ár. Ókeypis er að endurnýja skírteinin.
Lánstími er:
30 dagar fyrir allar bækur og tímarit, nema annað sé tekið fram með límmiða á bókarkápu.
7 dagar fyrir DVD.
90 dagar fyrir Artotek.
Ef þú skilar ekki lánum þínum í tæka tíð munu gjaldfallin gjöld eiga við. Þú getur endurnýjað lánin þín á leitir.is
Dagsektir
Bækur og önnur gögn 100 kr.
Hámarkssektir
Heildarsekt á hvern einstakling verður aldrei hærri en 7.500 krónur.
Viðmiðunargjald fyrir glötuð gögn og gögn sem skemmast í meðförum lánþega
- Bækur 2.000 kr
- Mynddiskar 2.000 kr.
- Artoteksverk 20.000 kr.
- Tímarit 1.000 kr.
Ef um ný gögn er að ræða (innan við tveggja ára) gildir innkaupsverð.
Barnabókasafn
Leikskólar, grunnskólar og aðrir hópar geta pantað heimsóknir í Norræna húsið og bókasafnið. Bókasafnið er vel útbúið af spilum og leikföngum, púðum og brúðum, bókum og litlum kastala sem gaman er að klifra upp í.
Í barnabókasafni Norræna hússins eru barnabækur, unglingabækur sem og fræðibækur fyrir börn á öllum 7 norðurlandamálunum. Á veturna eru sögustundir fyrir börn á íslensku, sænsku, finnsku, norsku, færeysku, grænlensku og dönsku.


Artótek
Artótek eða listlánadeild bókasafns Norræna hússins á sögu sína að rekja til ársins 1972. Það ár ákvað Bandalag norrænna grafíklistamanna að gefa Norræna húsinu 200 grafíkverk eftir norræna grafíklistamenn sem skyldi verða stofn að listlánadeild. Gjöfin var háð því skilyrði að verkin yrðu lánuð út eins og bækur safnsins.
Útlán hófust árið 1976 og þóttu mikil nýjung og mæltust vel fyrir. Töluvert hefur bæst við safnið frá árinu 1976 og verkin nú á 6. hundrað. Þeir sem eiga lánþegaskírteini í bókasafninu geta fengið 3 grafíkverk að láni í 3 mánuði í senn.