Rauður snjór

Rauður snjór vill ná til fólks á Norðurslóðum til að ræða afleiðingar loftslagsbreytinga. Hvaða áhrif hafa breytingar í náttúrunni á okkur? Hvað þýðir það fyrir framtíðina? Hvernig munum við laga okkur að breyttu umhverfi? Við trúum því að allir þurfi að koma að þessari umræðu og að allir hafi eitthvað fram að færa, ekki bara sérfræðingar og stjórnmálamenn.


17:00

Listamannaspjall 15. nóvember kl. 15:00 – 17:00.
Sunnudaginn  15. nóvember verður listamannaspjall með gestum og gangandi um sýninguna Rauður snjór. Jón Proppe, listfræðingur mun leiða umræður og sýnendur gefa gestum innsýn í verk sín. Allir velkomnir.

 

KONNECT málstofa- Fimmtudaginn 19. nóvember 2015 kl. 17:00-19:00
Viðburðurinn er skipulagður af KONNECT sem er norrænt verkefni og tengir listnema og vísindamenn á sviði umhverfisfræða. Markmiðið er að leita leiða til þess að vekja athygli á aðsteðjandi umhverfisógnum. Á málstofunni munu nemendur munu kynna tillögur sínar að listaverkum. Dr. Ragna Benedikta Garðarsdóttir dósent við sálfræðideild HÍ mun leiða umræður um tillögur nemendanna og hvernig hafa má áhrif á mannlega hegðun. Málstofan, sem fer fram á ensku vegna erlendra þátttakenda, verður í Svarta kassanum á neðri hæð Norræna hússins og er opin öllum.

Í KONNECT vinna vísindamenn, listamenn og nemendur saman í 4 daga vinnustofum sem skipulagðar eru af Háskóla Íslands og listaháskólum á öllum Norðurlöndunum. Vinnan skilar sér í safni hugmynda að listaverkum. Fyrsta vinnustofan var haldin að Kolstöðum í Borgarfirði í september síðastliðnum og tókst með afbrigðum vel

 

Sýningin Rauður snjór – þegar loftslaginu blæðir er til sýnis í Norræna húsinu í október. Sýningin er samsýning norrænna lista- og vísindamanna og er umfjöllunarefnið loftslagsbreytingar.

Þátttakendur í sýningunni:

Bente Elisabeth Endresen
Magnús Pálsson
Ragnhildur Stefánsdóttir
Julia Pars
Kristín Reynisdóttir
Kristian Blak
Pauline Motzfeldt Lumholt
Þóra Ellen Þórhallsdóttir
Tine Lander Rasmussen
Helgi Björnsson
Monica Kristensen
Jón Proppé.

Rauður snjór er nafn á hópi norrænna lista- og vísindamanna sem hafa áhyggjur af áhrifum loftslagsbreytinga á umhverfi og menningu á Norðurslóðum. Fyrir okkur sem búum á þessu svæði eru loftslagsbreytingar ekki bara framtíðarógn heldur sjáum við breytingarnar nú í dag allt í kringum okkur.
Jöklarnir á Grænlandi og Íslandi hopa hraðar ár frá ári og breyta landslagi, gróðri og farvegi vatna. Nýjar og ágengar tegundir finnast á hverju ári og raska jafnvægi í gróðurfari og dýralífi, og ógna líka lífríkinu í sjónum sem svo mörg samfélög á Norðurslóðum byggja afkomu sína á. Hættuleg efni safnast upp í fæðukeðjunni og ógna heilsu okkar og barnanna okkar.
Í okkar augum er það ekki spurning hvort eða hvenær þessi þróun verður hættuleg: Við erum þegar komin að þeim mörkum. Það verður heldur ekki lengur efast um það hvað veldur. Breytingarnar eru af mannavöldum: Við brennum olíu og gasi sem aldrei fyrr; námafélög rífa upp auðlindir jarðar og skilja heilu landsvæðin eftir sem eitraða auðn; olíufélög leita æ lengra í norður að nýjum lindum og taka lítið tillit til lífríkisins og menningar íbúanna. Skammsýn sókn í æ meiri gróða og hagvöxt er að eitra Jörðina og á hinum viðkvæmu Norðurslóðum hefur þetta þegar valdið óafturkræfum breytingum.
Við sem búum í norðrinu verðum að takast á við þessi málefni og við verðum að segja öllum heiminum frá því sem er að gerast á heimskautasvæðinu ef það á að vera hægt að snúa þróuninni við og forðast algjört hrun. Þess vegna höfum við í hópnum Rauður snjór sett saman nýtt verkefni sem felur í sér myndlistarsýningar, vinnustofur, listflutning og málstofur þar sem við leitumst við að efla umræðuna um loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir líf okkar sem búum í Norður-Atlantshafi.
Sýningin og viðburðir henni tengdir miða að því að skapa umhverfi fyrir þessar umræður: Ísjakar fljóta um í málverkum á veggjunum; höggmynd sýnir konu sem er orðin að ísbirni; vísindamenn setja fram rannsóknir sínar í máli og myndum; við heyrum sögur og trumbuslátt sem minna okkur á langa búsetu manna í norðrinu; við heyrum sögur um upphaf heimsins og örlög hans; við heyrum í hafinu um leið og við skoðum styttur af fólki sem virðist vera að sökkva ofan í gólfið; hangandi höggmyndaverk sýnir í svipan hvernig jöklarnir skreppa saman. Í hópnum eru ekki bara listamenn heldur líka vísinda- og fræðimenn sem hafa lengi rannsakað þróunina og eru uggandi um afleiðingar hennar. Rannsóknir þeirra eru kynntar og ræddar samhliða sýningunni og það er trú okkar að listir og vísindi þurfi að koma saman að þessum málefnum til að skýra hvað í húfi er og draga sem flesta inn í umræðuna.
Rauður snjór vill ná til fólks á Norðurslóðum til að ræða afleiðingar loftslagsbreytinga. Hvaða áhrif hafa breytingar í náttúrunni á okkur? Hvað þýðir það fyrir framtíðina? Hvernig munum við laga okkur að breyttu umhverfi? Við trúum því að allir þurfi að koma að þessari umræðu og að allir hafi eitthvað fram að færa, ekki bara sérfræðingar og stjórnmálamenn. Við viljum nota sýningar okkar til að skapa umræðugrundvöll og vekja fólk til umhugsunar um vandann. Við í norðrinu sjáum afleiðingar breytinganna og við verðum að láta raddir okkar heyrast. Ferðalag okkar byrjaði 2014 í Katuaq í Nuuk, sumarið 2015 var sýningin í Kaupmannahöfn og nú í Norræna húsinu í Reykjavík, og 2016 verður hringnum lokað með sýningu í Þórshöfn í Færeyjum.

 

Styrkt af:

Kulturkontakt Nord, Nordisk Kulturfond, Grønlands Selvstyre, Sermerqfonden, Nunafonden, Royal Arctic Line, Myndstef og Muggur sem og  Kulturhuset Katuaq i Nuuk, Nordatlantens Brygge i København, Nordens Hus på Island og Nordens Hus på Færøerne.

www.redsnow.dk