Þegar bókmenntir umbreyta raunveruleikanum

Höfundakvöld

Charlotte Weitze og Fríða Ísberg ræða hvernig bókmenntir notast við útópíska og dystópíska veruleika. Auk þess snýr samtalið snúa að því hvernig þær nýta framtíðarsögur, vísindaskáldskap og hliðstæða veruleika í sínum verkum þegar þær takast á við viðfangsefni á borð við líffræðilegan fjölbreytileika og pólaríseringu samfélagsins.

Umræðustjóri er skáldið og bókmenntagagnrýnandinn Þóra Hjörleifsdóttir.

Fríða Ísberg (f. 1992) er íslenskur rithöfundur búsett í Reykjavík. Hún var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir smásagnasafnið Kláði árið 2021 og hefur verkið verið þýtt á 5 tungumál. Fríða gaf nýlega út sína fyrstu skáldsögu, Merking, fyndna og skarpa framtíðarsögu þar sem ný tækni getur mælt samkennd fólks, en viðhorf fólks til tækninnar skapar mikla félagslega sundrung og pólaríseringu í samfélaginu. Að auki er Fríða meðlimur í Svikaskáldum og bókmenntaganrýnir hjá bókmenntatímariti The Times.
Charlotte Weitze (f. 1974) er með meistaragráðu í þjóðsögum og hefur skrifað smásögur, skáldsögur og útvarpsleikrit. Árið 1996 fékk hún Debutant verðlaun Bogforum hátíðarinnar fyrir smásagnasafnið Skifting. Nýjasta skáldsaga hennar, Rosarium, einblínir á tengsl manna og náttúru og blandar Weitze saman töfrum og hinu ótrúlega við realíska og vísindalega atburðarás.