Tilnefningar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs voru kynntar fimmtudaginn 26. febrúar, 2026. Hvað er það sem við lesum hér á Norðurlöndum? Eru einhverjir straumar eða eitthvað sérstakt sem einkennir norrænar bókmenntir?
Athugið að viðburðurinn fer fram á sænsku og norsku.
Af hverju eru íslenskir höfundar svona nostalgískir? Af hverju skrifa Norðmenn alltaf um flókin fjölskyldutengsl, Danir um fólk sem á erfitt með að finna sig, Svíar um erfiða sjálfsmynd og Finnar um að sætta sig við örlög sín í lífinu? Hvað með Grænlendinga, Sama, íbúa Álandseyja og Færeyinga? Er yfirhöfuð hægt að setja norrænar bókmenntir í einhvern ákveðinn flokk?
Þessum og fleiri spurningum verður velt upp í Norræna húsinu föstudaginn 27. febrúar. Frá Helsinki mun Salomon Hellman, bókasafnsfræðingur, meðal annars segja frá því hvernig móttökur bækurnar hafa fengið frá lesendum í Finnlandi og ræða líkindi við tilnefningar fyrri ára. Að því loknu fer fram samtal milli Yukiko Duke og Höllu Þórlaugar Óskarsdóttur undir stjórn Silje Beite Løken.