11.11.2026
Verið velkomin á höfundasamtal með leikskáldinu og rithöfundinum Sofi Oksanen, þar sem áhersla verður lögð á finnska leikritun. Hin finnsk-eistneska Oksanen er einn verðlaunaðasti rithöfundur Norðurlandanna og hafa verk hennar verið þýdd á meira en 40 tungumál.
Samtalið og spurningar úr sal fara fram á ensku.
Upplestur leikrita fer fram á íslensku.
Vinsamlegast skráið ykkur hér til að tryggja sæti í salnum.
Viðburðurinn er aðgengilegur í beinu streymi hér.
Þann 11. nóvember heimsækir Sofi Oksanen okkur í Norræna húsið, þar sem hún mun ræða nýjasta leikrit sitt, The Strawberry Fields, störf sín sem leikskáld, ferlið við að færa leikrit yfir í prósaform og framtíð finnskrar leikritunar. Einnig verður sjónum beint að verkum finnska rithöfundarins E. L. Karhu. Báðar hafa þær fengist við skáldsagna- og leikritun og gefst því tækifæri til að skoða tengsl þessara tveggja bókmenntaforma. Gréta Kristín Ómarsdóttir, dósent við Listaháskóla Íslands, stýrir samtalinu.
Albert Halldórsson
Benedikt Gröndal
Eygló Hilmarsdóttir
Sóli Hólm
Ókeypis er inn á viðburðinn en takmarkaður fjöldi sæta er í salnum. Vinsamlegast skráið ykkur hér til að tryggja sæti í salnum.
Viðburðurinn hefst á upplestri úr leikriti Oksanen „Jarðaberjaakur“, í þýðingu Kára Tulinius, ásamt broti úr leikritinu „Marian Blessing Strýkur af stofnuninni“ eftir finnska leikskáldið E. L. Karhu, í þýðingu Hallveigar Kristínar Eiríksdóttur. Upplesturinn fer fram á íslensku.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við bókmenntahátíðina Iceland Noir og leikhúsið LÍK.
Mynd af Sofi Oksanen: Toni Härkönen