Tore Kvæven

Höfundakvöld

Tore Kvæven (1969) er norskur sauðfjárbóndi, smiður, kennari og rithöfundur frá Sirdalen. Hann bjó á Íslandi í lok níunda áratugarins. Fyrsta bók Kvæven, spennutryllirinn Hard er mitt lands lov kom út árið 2011 og það tók hann 20 ár að skrifa hana. Bókin tekur á könnunarferðum víkinga til Afríku. Bókin Når landet mørknar kom út árið 2018 og fjallar um byggð norrænna manna á Grænlandi í lok þrettándu aldar. Fyrir þá bók fékk hann Brageprisen. Árið 2013 gaf hann út barnabókina Kameljægeren. Bækur hans hafa hlotið lofsamlega dóma og í ritdómi um Når landet mørknar segir: ”Af mikilli þekkingu á efninu, sannfærandi persónusköpun og lifandi lýsingu á staðháttum setur Kvæven fram hrífandi frásögn af óvægnu og erfiðu lífi á Grænlandi á miðöldum.” (Sigmund Jensen, Stavanger Aftenblad).

Silje Beite Løken, menningar- og upplýsingafulltrúi, norska sendiráðsins, stýrir umræðu sem fer fram á norsku.