Lýðræðið er á undanhaldi – og við stöndum frammi fyrir þeirri áskorun að verja það gegn ógnum en á sama tíma varðveita lögmæti þess. Norðurlöndin virða meginstoðir lýðræðisins: frjálsar og sanngjarnar kosningar, virka þátttöku borgarasamfélagsins, tjáningar- og fjölmiðlafrelsi, og jafnrétti. En þegar heimurinn virðist vera að snúa baki við lýðræðinu, hvað er þá til ráða?
Norræna ráðherranefndin stendur fyrir málþinginu “Lýðræði á ystu nöf: Hvernig bregst unga fólkið við?” þann 27. Maí, kl. 16.30 – 18:00 í Norræna húsinu.
Dagskrá:
- Opnunarorð: Jonas Hammer, starfsnemi í Norræna húsinu, meistaranemi í stjórnmálafræði við Háskólann í Árósum, og skipuleggjandi viðburðar.
- Ávarp: Maximillian Conrad, Prófessor við Háskóla Ísland, kynnir verkefnið RECLAIM – Reclaiming Liberal Democracy in the Postfactual Age.
- Ávarp: Skúli Bragi Geirdal, Sviðsstjóri SAFT – Netöryggismiðstöðvar Íslands
Pallborðsumræður:
- Maximillian Conrad, Prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Ísland
- Tinna Isebarn, Framkvæmdastjóri Landssambands Ungmennafélaga
- Heiðrún Vala, ungmennafulltrúi Amnesty International
- Skúli Bragi Geirdal, Sviðsstjóri SAFT – Netöryggismiðstöðvar Íslands
- Lóa Björk Björnsdóttir, þáttastjórnandi á Rás 1
Ræðustjóri: Jón Gunnar Ólafsson, lektor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Jonas Hammer, starfsnemi í Norræna húsinu og meistaranemi við Háskólann í Aarhus skipulagði viðburðinn.