Vinnustofa í vetrarfríi
9:30-11:30
Börn á aldrinum 8-10 ára eru velkomin að skrá sig í tveggja daga ókeypis vinnustofu í Norræna húsinu.
Vinnustofan tekur innblástur af og fer fram í tveimur nýjum sýningum hússins: Gárur og Norðrið. Þemu sýninganna eru áhrif loftslagsbreytinga og framtíð jökla, með fjórum listamönnum frá Íslandi, Grænlandi, Finnlandi og einum samískum listamanni. Börnin munu fræðast um listaverkin og fá innsýn í ólíka menningarheima í gegnum list og skapandi æfingar.
Unnið verður með mismunandi efni og aðferðir í tengslum við sýningarnar. Nemendur munu búa til gel prent, nota litríkt blek og prófa útsaum ofan á prentaðan striga. Einnig verður unnið með ný skapandi verkefnin sem tengjast listamönnum sýningarinnar, til dæmis er hægt að búa til ský úr þæfðri ull og gera tilraunir með að gera jökla úr útskornum pappa.
Vinnustofan er ókeypis en skráning er þörf og fæst með að senda nafn ,aldur og símanúmer foreldris eða forráðamanns, á hrafnhildur@nordichouse.is.