Viðbrögð Norðurlandanna við breytingum í alþjóðakerfinu
12-13
Föstudaginn 2. nóvember kl. 12-13 í fundarsal Norræna hússins.
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við Norðurlönd í fókus.
Viðbrögð Norðurlandanna við breytingum í alþjóðakerfinu
Norðurlöndin standa frammi fyrir nýjum og krefjandi áskorunum í alþjóðakerfinu. Hvernig geta þau haft áhrif á alþjóðavettvangi, hvernig er tengsl þeirra við stórveldin og alþjóðastofnanir, og hversu mikilvæg er norræn samvinna í dag? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem velt er upp í nýrri samanburðarrannsókn á þróun utanríkisstefnu Norðurlandanna fimm. Norska alþjóðamálastofnunin, NUPI, leiddi rannsóknina en alþjóðamálastofnanir frá öllum Norðurlöndunum tóku þátt í verkefninu.
Niðurstöður rannsóknarinnar verða birtar í tímaritinu Internasjonal Politikk á næstu dögum, en á þessum opna fundi verða niðurstöður Íslands, Noregs og Finnlands kynntar sérstaklega.
Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum.
Dagskráin er eftirfarandi:
Rich, Reliable, Strategically Located: Exploring Norway’s International Power Repertoire
Kristin Haugevik, rannsakandi við norsku alþjóðamálastofnunina, NUPI
Finnish Foreign Policy in the Backwash of Global Turmoil
Katja Creutz, rannsakandi við finnsku alþjóðamálastofnunina, FIIA
Iceland: A Small State Finding its Niche
Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, og Auður Birna Stefánsdóttir, verkefnastjóri Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Fundarstjóri: Charly Salonius-Pasternak, rannsakandi við finnsku alþjóðamálastofnunina, FIIA