Cover photo with orange letters that spell PIKKNIKK. It also says Open Call, and has two photographs of musicians playing with a band, one inside a greenhouse and the other one in an small auditorium with blue lights.

Tónlistarmenn athugið: Opið fyrir umsóknir!


Aðgangur ókeypis

Langar þig að koma fram í notalegu og lifandi umhverfi í sumar? Pikknikk-tónleikaröð Norræna hússins er orðin fastur liður í tónlistarlífi Reykjavíkur yfir sumarmánuðina. Tónleikarnir fara fram í gróðurhúsinu, með fallegu útsýni yfir Vatnsmýrina og fuglasöng fjölbreyttra íbúa friðlandsins í bakgrunni.

Norræna húsið leitar nú að tónlistarfólki fyrir dagskrá sumarsins! Áherslan árið 2026 er á sólólistamenn og minni hljómsveitir, helst í þjóðlagatónlist, klassík eða rólegu poppi. Við leitum að tónlistarfólki sem getur heillað áhorfendur, hvort sem er með sterkri sviðsframkomu eða töfrandi tónum.

Hljómar þetta eins og eitthvað fyrir þig eða hljómsveitina þína? Sendu umsókn til Norræna hússins með stuttri kynningu á þér eða hljómsveitinni (150–200 orð), mynd og tenglum á tvö af þínum bestu lögum.

Þóknun: 50 000 ISK fyrir sóló, 80 000 fyrir 2 eða fleiri tónlistarmenn

Sendu umsókn til: lindmusik@gmail.com

Lokadagur til að skila inn umsókn er 15. Mars. 

Mikael Lind, verkefnastjóri Pikknikk 2026, fer í gegnum allar umsóknir og velur saman í tónlistarröð. Allar spurningar skulu beinast til hans í tölvupósti. Umsóknum verður svarað í lok mars.