Sea-shell spiral in light blue, purple, and pink on a purple background. In the left corner, it is spelled stockfish in whote capital letters. At the bottom of the pictures is all the collaborators listed

Stockfish 29. Mars: Barnadagskrá


13:00 - 17:00
Elissa Auditorium
Aðgangur ókeypis

Við erum spennt að halda áfram samstarfi okkar við Stockfish kvikmyndahátíðina!

Í ár mun Norræna húsið hýsa tveggja daga dagskrá sem inniheldur Stockfish Industry Days með áherslu á Framtíð kvikmyndalandslags Norður-Atlantshafsins, laugardaginn 28. mars. Á sunnudaginn 29. mars verður svo frábær og lifandi barnadagskrá.


Lesið meira um alla dagskrána á heimasíðu Stockfish með því að smella hér.


Dagskrá 29. Mars:

Kl. 13:00

Búðu til þinn eigin karakter

Taktu þátt í skapandi vinnustofu með Þóreyju Mjallhvít, höfund Ormhildarsögu, og hannaðu þinn eigin teiknimyndakarakter.

animated figure holding around her dog standing with their backs towards the viwer looking towards a sunset with a vulcano erupting in the distance

Þátttakendur skoða hugmyndir, teikningu og skapandi frásögn og kynnast því hvernig teiknimyndapersónur verða til. Þetta verður skemmtileg og ímyndunarík stund fyrir börn sem hafa áhuga á teikningu og sögum.

Kl. 14:00
Krakka- hugmyndir

Velkomin á skemmtilega og skapandi stund þar sem rödd barnanna skiptir mestu máli. Kids’ Pitch (Krakka hugmyndir) er viðburður þar sem kvikmyndagerðarfólk kynnir verkefni í vinnslu, og ræða beint við börnin.

Höfundar deila hugmyndum sínum og sögum með ungu áhorfendunum og fá endurgjöf frá þeim sem verkin eru ætluð fyrir.

15:00
Tulipop Vetrarsaga

Komið og horfið á Tulipop Vetrarsögu, nýtt og töfrandi íslenskt ævintýri sem gerist í undraveröld Tulipop.

Á vetrarsólstöðum, töfranótt ársins, hafa vinirnir Freddi, Gló, Búi og Maddý gert óskir sínar samkvæmt hefð og bíða spennt eftir heimsókn og gjöfum frá Snjóku. En þegar gjafirnar reynast óvæntar leggja þau upp í ævintýraferð til Skýjaborgar í von um að bjarga Vetrarhátíðinni.

Horfa á stiklu – smellið hér. 

Ár: 2025
Tungumál: Íslenska
Land: Ísland
Tungumál: Íslenska, Texti: Enska
Leikstjóri: Sigvaldi J. Kárason
Handrit: Sean Carson

Aðrir viðburðir