Sæktu þér að lesa sögur eða ljóð.
14:00-16:00
Sæktu þér að lesa sögur eða ljóð
Í tilefni af tuttugu ára afmæli Stóru upplestrarkeppninnar efna Íslensk málnefnd og Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn til málþings í Norræna húsinu 12. maí kl. 14.00-16.00. Málþingið fer fram á íslensku.
Á málþinginu verður fjallað um gildi og áhrif keppninnar, þá möguleika sem í henni felast, tengsl lesskilnings og vandaðs upplestrar og horft fram á veginn.
Framsögumenn koma úr ýmsum áttum, fræðimenn, kennarar, skáld, nemendur auk fulltrúa menntamálayfirvalda.
Málþingið er ætlað skólafólki, foreldrum og öllum þeim sem láta sér annt um læsi, lestraráhuga og vandaðan upplestur.