OPNUN: HOW DID I GET TO THE BOMBSHELTER


16:00 -19:00
Hvelfing
Aðgangur ókeypis

Verð velkomnir á opnun sýningarinnar „Hvernig komst ég í sprengjubyrgið“
Laugardaginn 4. Febrúar kl 16:00

Dagskrá:
Sabina Westerholm, forstöðumaður Norræna hússins, býður gesti velkomna
Yulia Sapiga, sýningarstjóri heldur stutta ræðu
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur opnar sýninguna

Listamenn verða viðstaddir opnunina.

Léttar veitingar í boði.

 

Hvernig ég komst í sprengjubyrgið er þverfagleg sýning sjö úkraínskra listamanna í Norræna húsinu, sýningarstjóri er Yulia Sapiha. Í sýningunni kafa listamennirnir djúpt ofan í eigin reynslu af stríðinu, þrána eftir friðsælu lífi, leiðina til þess að þrauka af og vonina um framtíðina.

Listamenn sýningarinnar eru: Kinder Album (b. 1982), Mykhaylo Barabash (b. 1980), Jaroslav Kostenko (b. 1989), Sergiy Petlyuk (b. 1981), Elena Subach (b. 1980), Art Group Sviter (b. 1982), Maxim Finogeev (b. 1989).

Sýningarstjóri: Yuliia Sapiga
Grafísk hönnun: Olenka Zahorodnyk