Öll fjölskyldan er velkomin á sænska og íslenska sögustund!


10:30-11:30
Barnabókasafn

Lesturinn fer fram á barnabókasafni Norræna húsið og allar myndabækur sem valdar eru til upplestrar tengjast þemu Norðursins,  núverandi sýningar  barnabókasafnsins.

Norðrið býður ungum gestum inn í skapandi og hugmyndaríkt rými, innblásið af norðlægri náttúru, jöklum og ævintýraheimum. Norðrið opnar á sama tíma og myndlistarsýningin Gárur: umbreytingar á norðurslóðum opnar í sýningarýminu Hvelfingu og má finna verk listamannanna einnig inni á barnasýningunni.

Lesnar verða myndabækur og er einn tilgangur upplestursins að hvetja til myndlæsis, svo fjölskyldur sem tala ekki tungumálið eru einnig hvattar til að koma, heyra norrænt tungumál og skoða myndirnar. Að loknum upplestri eru gestir hvattir til að vera áfram og njóta bókasafnsins. Hægt er að taka þátt í fjölmörgum gagnvirkum leikjum og föndri í tengslum við sýninguna. Íshella- og jöklastemning mótar rýmið og hvetur gesti til að upplifa norðrið með öllum skilningarvitum: að leika, ímynda sér, skapa og tengjast bæði náttúru og list á eigin forsendum. Hægt er að nálgast efni og fá frekari upplýsingar í afgreiðslu barnabókasafnsins og Hvelfingar.

Oft verða bækur fyrir valinu sem tilheyra Bókagleypinum, sem er Norrænn gagnagrunnur með fræðsluefni sem tengist bókum sem hafa verið tilnefndar eru til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Gagnagrunnurinn er ókeypis og aðgengilegur öllum, á öllum Norðurlandamálum, á bokslukaren.org. Með aðstoð kennsluefnisins á bokslukaren.org er hægt að skilja innihald bókanna enn betur. Hægt er að fræðast um Bókagleypinn og skoða bækur sem tilheyra honum í einu horni bókasafnsins.

Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.