Miðvikudagsmorgnar – Tónlistarstund með Natalie!


10:30
Aðgangur ókeypis

Fjölskyldur með börn á aldrinum 0-3 ára er boðið á gagnvirka tónlistarstund sem leidd er af fiðluleikaranum og tónlistarkennaranum Natalia Duarte Jeremias.

Viðburðurinn er um 30 – 40 mínútur að lengd, aðgengi er ókeypis og allir velkomnir! Athugið að takmarkað pláss er á viðburðinn svo skráning er nauðsynleg með því að senda tölvupóst: tonlistarstund@gmail.com.

Natalia notar rödd sína til að ná sambandi við börnin og leikur með tón og takt – mikilvægt er að stundin fari fram án orða svo að einbeiting barnanna verði einungis að hljóðheiminum, melódíu og taktinum. Þessi aðferð byggist á aðferðum og tónlistarnáms kenningum Edwin Gordon’s, sem miða að því að þróa tónlistar hugsun og sköpun hjá yngstu börnunum. Stundin hefst á því að Natalia segir stuttlega frá því hvað mun fara fram og hvers er ætlast af foreldrum (á ensku). Eftir stundina biður Natalia foreldrum í opið samtal og svarar spurningum og getur samtalið farið fram á ensku, spænsku og ítölsku.

Hægt er að fræðast meira um feril Natalia, útgáfur og viðburði á www.nataliaduarte.net

Þessi viðburður er partur af Fjölskyldu miðvikudögum. Á miðvikudagsmorgnum eru í boði skynjunarleikföng fyrir yngstu gestina (0-2 ára). Morgnarnir eru hugsaðir fyrir foreldra í fæðingarorlofi og einnig verða í boði hinar vinsælu tónlistarstundir, ýmsir örfyrirlestrar, Ljóðakistan og fleira. Plantan Bistró er með sérstakt tilboð fyrir unga gesti þessa morgna og hægt er að taka með sér kaffi og með því , niður á barnabókasafn. Næsta Fjölskyldu miðvikudag 25. febrúar fer fram: Fræðslustund með Svaninum: Skaðleg efni í umhverfi barna.

AÐGENGI: Barnabókasafnið er aðgengilegt fyrir hjólastóla frá Hvelfingu sýningarrými. Starfsfólk bókasafns gefur góðar leiðbeiningar. Á aðalhæð hússins er lyfta sem leiðir niður í Hvelfingu og á sömu hæð er salerni aðgengilegt hjólastólum, öll salerni hússins eru kynhlutlaus. Rampur leiðir frá bílastæði að Norræna húsinu. Þessi viðburður fer fram á ensku, ítölsku og spænsku.

Aðrir viðburðir