Leiðsögn um sýninguna Er þetta norður?
18:30
Velkomin á leiðsögn um sýninguna Er þetta norður? Fimmtudaginn 30. janúar klukkan 18:30.
Kolbrún ÝR Einarsdtóttir mun leiða gesti í gegnum sýninguna Er þetta norður?
Leiðsögnin tekur um klukkutíma og fer fram á ensku. Spurningar á íslensku eru velkomnar. Í tilefni af „Góða fimmtudegi“ verður sýningarrými opið til klukkan 21.
Hver er afmörkun „norðursins“? Hvar eru landamæri Norðurheimskautsins? Hvað einkennir þau sem sem eiga heima á slóðum Norðurheimskautsins? Eru verk listamanna frá norðurslóðum alltaf unnin undir áhrifum af búsetu þeirra þar? Samsýningin Er þetta norður? kannar svörin við þessum spurningum og þar eru sýnd verk eftir listamenn frá hinu víðfeðma norðri. Þátttakendur eru Gunnar Jónsson, Anders Sunna, Máret Ánne Sara, Inuuteq Storch, Nicholas Galanin, Dunya Zakha, Marja Helander og Maureen Gruben.
Plantan Bistro fagnar opnum nýs veitingastaðar á efri hæðinni með mat, léttri hressingu og lifandi tónlist. Allir eru velkomnir að taka þátt frá klukkan 17 til 19.
Aðgengi að Hvelfingu sýningarsal er með tröppum að utan og með lyftu frá aðalhæð Norræna hússins. Að húsinu liggur rampur frá bílastæði og er sjálfvirkur hnappur á aðaldyrum hússins. Lyftan er strax á hægri hönd þegar komið er inn. Aðgengileg salerni eru á aðalhæð hússins.
Forsíðumynd: Marja-Helander, úrklippa úr myndbandi hennar „Birds in the Earth“, 2018