
Leiðin: performatíf pílagrímsferð um Vatnsmýrina
14.00 - 16:00
Verið velkomin í performatífa pílagrímsferð um Vatnsmýrina í Reykjavík!
12. og 14. júní munu Steinunn Knúts Önnudóttir og Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir sviðslistakonur bjóða gestum í performatífa pílagrímsferðir um Vatnsmýrina í Reykjavík. Í anda pílagrímsferða ganga þátttakendur til móts við sjálf sig en í gegnum sviðssettar hugleiðingar, athuganir og önnur létt verkefni er sjónum beint að tengslum manns við umhverfi sitt. Gangan byrjar og endar við Norræna húsið og hentar öllum aldurshópum með allskonar getu.
Skráning í ferðina fer fram með tölvupósti á fallegt@fallegt.com. Tilgreinið dagsetningu og fjölda þátttakenda. Einnig er hægt að bóka sérstakar ferðir fyrir hópa á ensku eða dönsku eftir samkomulagi. Gengið verður 12 júní og 14 júní. Sjá frekari upplýsingar hér fyrir neðan.
Gangan er hluti af röð performatífra pílagrímsferða sem Steinunn er að vinna að í kringum landið og í hugans rými. Á hverjum stað er hún í samstarfi við fólk sem tengist staðnum eða áherslu göngunnar hverju sinni. Pílagrímsgöngurnar taka útgangspunkt í tilvistarlegum tengslum manns við umhverfi sitt og hugmyndum um sjálfbærni. Hvert verk markast af því umhverfi sem leiðin fer í gegnum en þær eru annað hvort hópferðir með leiðsögn eða ferðir á eigin vegum eftir leiðarlýsingum sem nálgast má á heimasíðu verkefnisins.
Leiðin er hluti af stærra verkefni sem Steinunn leiðir undir hatti Fagurferða sem er nýtt andlegt ferðafélag sem býður upp á performatífar upplifanir sem eru í senn fagurfræðilegar, hugvekjandi og þerapískar, undir formerkjum lista, náttúru og heimspeki. Aðrar göngur verða í Kjós, Ásbyrgi og Hallormstað. Síðasta gangan verður hljóðverk sem hentar þeim sem eiga ekki heimangegnt en þar verður ferðast um hugans rými. Í Reykjavík er gangan sérstaklega hönnuð með þarfir fólks með fjölbreytta hreyfigetu í huga en Kolbrún Dögg sviðshöfundur ferðast sjálf um á hjólastól.
Staður og stund:
Steinunn og Kolbrún munu leiða göngur frá Norræna Húsinu
- Fimmtudag 12.júní kl.14:00 – 16:00
- Laugardag 14.júní kl.14:00 – 16:00.
Ferðin tekur um 90 – 120 mínútur og er umþb. 2,5 kílómeter. Boðið er uppá hressingu í ferðinni. Ferðast er eftir malbikuðum göngustígum og hellulögðum gangstéttum en um 5-10% af leiðinni er eftir malarstígum með fínni möl. Leiðsögnin er á íslensku en hægt er að nálgast enskar og danskar leiðarlýsingar á heimasíðu verkefnisins fallegt.com/leidin
Skráning í ferðina fer fram með tölvupósti á fallegt@fallegt.com. Tilgreinið dagsetningu og fjölda þátttakenda. Einnig er hægt að bóka sérstakar ferðir fyrir hópa á ensku eða dönsku eftir samkomulagi.
Meiri upplýsingar um verkefni Fagurferða á https://fallegt.com.