Krilja – Tónleikaröð Norræna hússins
20:00
Tónleikar 5. júlí kl. 20:00
Krilja er tríó frá Gautaborg í Svíþjóð og sérstakur gestur tónleikaraðarinnar og spilar hefðbundna sígaunatónlist frá Rússlandi og Austur-Evrópu. Tónlistin er af ótilteknum aldri en oft eru lögin frá 19 öld og síðar og sveiflar á milli ljóðrænnar melankólíu og funheitrar ákefðar. Textar laganna eru á rómatungumáli eða rússnesku og fjalla um sorg, sársauka, fátækt og eymð, en einnig um ást og ástríðu. Útsetningarnarnar eru eigin túlkanir og spuni tónlistarmannana.
https://www.facebook.com/Krilja/
Verið velkomin á Tónleikaröð Norræna hússins alla miðvikudaga í sumar frá 14. Júní til 30. ágúst. Tónleikaröðin inniheldur rjómann af íslenskum djassi og íslenskri þjóðlagatónlist, með smá áhrifum frá latínu- og balkantónlist, sem og góðum gesti frá Svíþjóð. Tónleikaserían einkennist af afbragðs tónlistarmönnum og spannar allt frá hinu melankólíska og lágstemmda yfir í hið ástríðufulla og stormasama.
Tónleikarnir fara fram í Aðalsal Norræna hússins og miðaverð er 2000 kr.
Dagskrá
14. júní Ragnheiður Gröndal
21. júní Umbra
28. júní Baldvin Snær Hlynsson
5. júlí Krilja
12 júlí Snorri Helgason
19 júlí Tómas R. tríó
26 júlí Stína Ágústsdóttir
2. águst Ragnheiður Gröndal
9. águst Skuggamyndir frá Býsans
16. águst Tómas R. kvartett
23. águst Umbra
30. águst Þorgrímur Jónsson