Kosningar á Grænlandi
12:00 - 13:15
Kosningar á Grænlandi
Opinn fundur á vegum Rannsóknarseturs um norðurslóðir og Norðurlanda í fókus fimmtudaginn 12. apríl frá kl. 12 – 13:15 í Norræna húsinu
Kosningar fara fram á Grænlandi þann 24. apríl. Á þessum opna fundi verður farið yfir stöðu stjórnmála á Grænlandi.
Fundarstjóri: Sigurður Ólafsson verkefnastjóri hjá Norræna húsinu
Dagskrá
Grænland : Áhrif alþjóðastjórnmála á innanlandsmál
- Damien Degeorges er búsettur í Reykjavík þar sem hann starfar sem ráðgjafi. Hann hefur fylgst náið með þróun mála á Grænlandi í yfir 15 ár. Hann hefur einning skrifað fyrir grænlenska dagblaðið Atuagagdliutit/Grønlandsposten og kennt alþjóðastjórnmál við Háskólann á Grænlandi.
Um hvað snýst kosningabaráttan?
- Unnur Brá Konráðsdóttir sat á Alþingi 2009 – 2017, fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var kjörin forseti Alþingis 2017 og var formaður íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins 2013 – 2016. Unnur Brá var nýlega ráðin af forsætisráðherra sem aðstoðarmaður ríkisstjórnar og fer með verkefnisstjórn stjórnarskrárendurskoðunar.
Mikilvægi kosninganna og komandi kynslóð
- Tukumminnguaq Nykjær Olsen er meistaranemi í Vestnorrænum fræðum, Polar law, við Háskólann á Akureyri. Hún er frá Qaanaaq á Grænlandi og er virkur meðlimur í Global Indigenous Youth Caucus hjá Sameinuðu þjóðunum og er fyrrverandi formaður pólitíska nemendafélagsins ILI ILI og sigurvegari í Arctic Innovation Lab, Arctic Circle Assembly á Íslandi 2017.
Umræður á eftir, fara fram á ensku.
Fundurinn fer að mestu fram á ensku