Hyggestund


13:00-15:00
Barnabókasafn

Búið til ykkar eigið jökuldýr!

Við bjóðum alla fjölskylduna velkomna að koma og búa til jökuldýr. Þið hafið kannski heyrt um jökulmýsnar, kannski hafið þið jafnvel séð eina. Í þessari vinnustofu ætlum við að búa til dýr sem býr á jöklinum, kannski eru það mýsnar, kannski er það fljúgandi ísdreki, en það er allt undir ímyndunarafli ykkar komið! 

Við munum nota pappír, pípuhreinsara og kannski nokkrar fjaðrir.

Takið þátt í ratleik og reynið að finna jökulmýs sem eru að flakka um barnabókasafnið. Fáið innblástur á sýningunni Gárur! 

Þið getið fengið allt efni við borð bókasafnsfræðingsins.

Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.