HRINGRÁSARJÓL: Skiptimarkaður, Textíl Barinn og jólapeysusmiðja
13:00-17:00
Notað verður nýtt á jólahringrásarmarkaði
Norræna hússins, Landverndar og Grænfánans!
Viðburðurinn er hluti af Aðventudagskrá Norræna hússins og hvatningarátaki Landverndar og Grænfánans um Nægjusaman Nóvember.
Dagskrá:
13:00-17:00 – Jólahringrásarmarkaður opinn og Textíl Barinn verður á staðnum!
14:00-17.00 – Jólapeysusmiðja með Ýrúrarí
Jólahringrásarmarkaður:
Það sem nýtist þér ekki lengur gæti vel reynst fjársjóður annars – og öfugt! Komdu t.d. með bækur, leikföng, spil og skiptu fyrir eitthvað annað. Tilvalið tækifæri til þess að finna umhverfisvænar jólagjafir sem þú getur sett undir tréð með góðri samvisku.
Við biðjum þátttakendur vinsamlegast aðeins að koma með hluti sem eru í góðu og nothæfu ástandi.
Skiptimarkaðsflokkarnir eru:
• Leikföng
• Spariföt og prjónuð föt
• Jólaskraut/jólamunir
• Bækur og spil
• Hlutir fyrir heimilið
Jólapeysusmiðja með Ýrúrari:
Fjölskylduvæn smiðja þar sem peysur öðlast nýtt útlit í jólaþema fyrir desember.
Smiðjan byggir á skapandi fataviðgerðar smiðjum textílhönnuðarins Ýrúrarí, þar sem föt öðlast nýtt líf og útlit með mjög einföldum og aðgengilegum aðferðum.
Þátttakendur koma sjálfir með peysu, eða prjónaða flík, sem þau vilja breyta og ef einhverjar sérstaklega jólalegar hugmyndir hafa vaknað fyrir smiðju, eins og t.d að nota litlar jólaseríur eða úrelt jólaksraut heima úr geymslu, þá er um að gera að taka slíkt með!
Í smiðjunni verður í boði ýmis efniviður og verkfæri sem hægt er að vinna með í einföldum og skrautlegum textíl aðferðum sem henta algjörum byrjendum sem og lengra komnum. Einnig verður í boði efniviður og lausnir til að taka þátt í smiðjunni án þess að koma með peysu eða flík, enda ýmislegt sem hægt er að útbúa til að festa á flíkur tímabundið bara fyrir jólin.
Ætlast er til að börn yngri en 12 ára komi í fylgd fullorðins.
Skapandi fataviðgerðarsmiðja Ýrúrarí hefur ferðast víða, og hefur t.f farið fram í Tívolí í Kaupmannahöfn, Textile Art Center í New York, á Helsinki fashion week og á MAK safnið í Vín. Þátttakendum er því einnig frjálst að vinna fataviðgerðir sem eru ekki í jólaþema og virka allan ársins hring en stuðst er við svipaðar aðferðir á jólapeysusmiðjunni. Smiðjuna þróaði textílhönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir (Ýrúrarí) á Hönnunarsafni Íslands í lokaverkefni sínu í listkennsludeild LHÍ, þar sem markmiðið var að móta aðgengilega fataviðgerðarsmiðju þar sem skapandi hugsun og flæði ræður för. Ýrúrarí er þekkt fyrir endruvinnsluverkefni sín með notaðar ósöluhæfar peysur sem hún glæðir nýju lífi og persónuleika með fjölbreyttum handverks aðferðum.
Hægt er að skoða verkefni Ýrúrarí á www.yrurari.com
Textíl barinn:
Textíl Barinn er lítið sprotafyrirtæki sem er með það að markmiði að endurnýta textíl og finna leiðir til að hanna vörur og koma aftur inn í hringrásarhagkerfið. „Markmið okkar er að auka vitund um endurvinnslu og endurnýtingu á textíl og þannig stuðla að ábyrgri neyslu, skapandi lausnum og félagslegri þátttöku.“
Hægt verður að versla endurnýtt garn hjá Textíl Barnum! Þær sérhæfa sig í því að gefa áður elskuðum textíl nýtt líf. Þær endurvinna, endurhanna og gera þannig textílinn aðlaðandi og aðgengilegri.
Textíl Barinn er með vinnustofu og litla verslun á Faxatorgi, Faxafeni 10. Meiri upplýsingar á www.textilbarinn.is
Við hlökkum til að sjá ykkur og bendum einnig á að Plantan verður með sérstakan jólamatseðil og jóladrykki í boði.
Aðgengi að Elissu sal og andyri er gott, lágur þröskuldur er inn í Elissu sal. Aðgengileg salerni eru á aðalhæð.
Nánar um aðgengismál má lesa með því að smella hér. 
