HÖNNUNARMARS: Varðveisla
10:00-21:00
Hugmyndin að Varðveislu byggist á gömlum hefðum í matargerð sem varðveita þau góðu áhrif sem matvæli geta haft á líkamann. Á þann veg er stuðlað að betra sambandi líkama og matvæla og neyslu þeirra á heilsusamlegan hátt. Varðveisla er vörulína með ílátum úr
steinleir. Ílátin auðvelda matargerð með náttúrulegum ferlum þar sem örverur eru við stjórn.
Varðveisla verður á veitingastaðnum Sónó í Norræna húsinu á HönnunarMars.
Í verkefninu er samband heilsunnar, fæðunnar og þarmaflóru líkamans skoðað. Viðfangsefnið er þróun á sérstökum ílátum úr leir sem auðvelda matargerð með náttúrulegum ferlum þar sem örverur eru við stjórn. Hönnuð eruð matarílát úr leir sem notuð eru í tvenns konar gerjunarferli. Annars vegar ílát til gerjunar á grænmeti og hins vegar fyrir varðveislu súrdeigsmóður. Ferlin eru loftfirrt og eru ílátin sérstaklega hönnuð með það í huga. Vatnslás er innbyggður í ílátin, hann hleypir lofti út úr þeim en ekki inn í þau. Hönnunin vísar í gamlar hefðir, þær stjórnast af náttúrulegum ferlum sem innihalda góðgerla en þeir eru nauðsynlegir fyrir meltingu okkar. Sónó matseljur í Norræna húsinu bjóða upp á grænkerafæði og vinna matinn frá grunni sem rímar sérlega vel við hugmyndafræði Varðveilsu. Á HönnunarMars verður verkefnið til sýnis á veitingastaðnum með spennandi tvisti.
Varðveisla byggir á útskriftarverkefni Ingu Kristínar Guðlaugsdóttur, í vöruhönnun, frá Listaháskóla Íslands vorið 2019. Í nútímasamfélagi er lögð mikil áhersla á hraða og skilvirkni. Fólk vinnur langa vinnudaga og hefur lítinn tíma aflögu til að sinna grunnþörfum. Heilsa fólks er mikið í umræðu á Íslandi og reglulega kemur upp umræða um það hversu afgerandi áhrif þarmaflóran hefur á heilsuna. Mataræði sem stuðlar að bættri heilsu og nýtingu næringarefna úr fæðunni nýtur vinsælda. Matarhönnun í dag gengur að miklu leyti út á að nota staðbundin hráefni, vinna matinn frá grunni og nýta náttúrulega ferla eins og gerjun matvæla. Hráefnin sem notuð eru í slíka matargerð eru einföld, aðgengileg og flest auðræktanleg á Íslandi. Því stuðlar hún að vali á staðbundnu hráefni og miðar þar af leiðandi að sjálfbærni.
Sérstaða verkefnisins felst í því hönnun íláta með sérstakri virkni sem nýtist í náttúrulega ferla, en þeir byggjast á gömlum hefðum. Útlit ílátanna, form og áferð, vísar í innihald þeirra. Ílátin eiga að ýta undir áhuga á að nýta þessar gömlu hefðir. Áhugaverð ílát sem eftirsóknarvert er að hafa sýnileg í fallegu umhverfi nútíma heimilis. Ílátin skapa umræðu sem hvetur til matargerðar á heimilinu. Það stuðlar einnig að því að hægja á og fá hvíld frá hraða og streitu umhverfisins.