
Heimildamyndasýning á Alþjóðadegi farfugla
17:00
Vertu með okkur á heimildamyndasýningu á Alþjóðadegi farfugla: „Puffling“(Lundapysja) & „The Last Observers“(Síðustu vaktmennirnir)
Um myndirnar:
„Puffling“ (2024), leikstýrt af Jessicu Bishopp, er margverðlaunuð heimildarmynd sem sameinar þemu unglingsáranna, umhverfisverndar og samfélagshefðar í Vestmannaeyjum. Myndin fylgir Birtu og Selmu þegar þær taka þátt í árlegu björgunarstarfi pysjanna, sem oft villast í fyrstu flugi sínu vegna gerviljósa bæjarins og lenda því í þéttbýli í stað þess að komast til sjávar.
„The Last Observers“ (2025), leikstýrt af Maju K. Mikkelsen, er náin heimildarmynd um Karin Persson og Lennart Karlsson, síðustu veðurathugendur Svíþjóðar og helstu fuglaathugendur sem stýra fuglastöðinni í Falsterbo, einni af mikilvægustu farfuglaskoðunarstöðvum Evrópu.
Gestir:
- Erpur Snær Hansen, PhD og forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands
- Birta, þátttakandi í heimildamyndinni „Lundapysja“
Dagskrá viðburðarins:
- 17:00 – Inngangur og kynning
- 17:10 – Sýning á „Síðustu vaktmennirnir“
- 17:35 – Kaffi/Te-pása
- 17:45 – Sýning á „Lundapysja“
- 18:10 – Spurningar og svör með Birtu og Erpi
Sjáðu stiklu myndanna:
Puffling | Trailer – https://youtu.be/4Kg8yspjnXU?si=cEjgn2BydeVXvnnt
The Last Observers | Trailer – https://youtu.be/CVlHEkN44-8?si=Rnj0NIush_2A6kqm
Dagsetning & tími: 8. maí 2025 kl. 17:00
Aðgangur: Ókeypis! Athugið að takmarkað sætaframboð er og gildir reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“.
Tungumál: Viðburðurinn fer fram á ensku.