Fjölskyldu miðvikudagar með Svaninum: Grænn Lífstíll


10:30
Barnabókasafn

Velkomin á fræðslu miðvikudaga í samstarfi við Svaninn á Íslandi.

Daglega tökum við fjölmargar lífstílstengdar ákvarðanir, sem hafa misgóð, eða slæm, áhrif á umhverfi og heilsu okkar og fólksins í kringum okkur. Förum yfir hvaða einföldu skref hægt er að taka í átt að grænni lífsstíl.

Fyrirlesari er Ester Alda H. Bragadóttir, sérfræðingur hjá Svaninum á Íslandi.

Eftir kynninguna verður hægt að leika sér í skemmtilegu Línu Langsokk sýningunni “Lína, lýðræðið og raddir barna”, þar er ævintýrahús og búningar!

Aðgengi: Gengið er niður stiga frá bókasafni og aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Ókeypis er inná alla viðburði á vegum Norræna hússins.

Aðrir viðburðir