Fjölskyldu miðvikudagar með Plöntunni Bístró


10:30

Fjölskyldu miðvikudagar með Plöntunni bistró er sambland af viðburðum; tónlistarstundir, foreldrafræðsla, vinnustofur eða föndur og tilboð fyrir yngstu gestina á veitingum hjá Plöntunni bístró.

Þennan miðvikudag býður plantan upp á skynjunarleik og verður leiðbeinandi á staðnum frá kl. 10:30-11:00.

Gestum er boðið að vera áfram og njóta nýrrar sýningar Lína, lýðræðið og raddir barna. Hægt er að prófa búninga, leika sér í Línu ungbarnatjaldi og Línu ævintýrahúsi eneinnig verða segulkubbar á staðnum fram að hádegi.

Aðgengi: Gengið er niður stiga frá bókasafni og aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Ókeypis er inná alla viðburði á vegum Norræna hússins.

 

Aðrir viðburðir