Fataskiptimarkaður


14:00 - 17:00
Elissa Auditorium & Anddyri
Aðgangur ókeypis

Fataskiptimarkaður í Norræna húsinu – 10. júní, 14:00-17:00! – taktu daginn frá!

Ertu þreytt/ur á þessum haug af fötum sem þú notar aldrei, sem eru bara þarna og taka pláss? Vantar þig nýja flík til að fullkomna sumarið? Viltu forðast það að styðja hraðtísku og loftslagsskaðandi fataiðnað?

Nú hefur þú tækifæri til að slá þrjár flugur í einu höggi!

Starfsnemar norrænu sendiráðana, Norræna hússins og Seeds halda fataskiptimarkað þar sem þú getur endurnýjað fataskápinn með notuðum flíkum og á sama tíma lært meira um hringrásarneyslu!

Viðburðurinn er einnig í samstarfi með Ungum Umhverfissinnum sem munu halda kynningu um nútíma fataiðnað og umhverfisáhrif hans.

Dagskrá:

Kynning frá Antoniu Hamann: 14:00-14:30

Fataskiptimarkaður hefst: 14:30 – 17:00

Hagnýtar upplýsingar:

Viðburðurinn er algjörlega ókeypis – Opið verður á Plantan bístró og þar er hægt að versla hressingu.
Þú getur komið með föt fyrirfram frá 3. til 9. júní á opnunartíma Norræna hússins: 10-17. – tekið er við þeim á bókasafni.
Þú getur einnig komið með fötin þín á sjálfum viðburðardeginum!
Við tökum ekki við fötum frá hraðtískumerkjum: Temu, Shein og sambærilegu.
Hver þátttakandi má koma með allt að 10 flíkur!

Við hlökkum til að skipta við þig!