Er þetta norður?
Hver er afmörkun „norðursins“? Hvar eru landamæri Norðurheimskautsins? Hvað einkennir þau sem sem eiga heima á slóðum Norðurheimskautsins? Eru verk listamanna frá norðurslóðum alltaf unnin undir áhrifum af búsetu þeirra þar? Samsýningin Er þetta norður? kannar svörin við þessum spurningum og þar eru sýnd verk eftir listamenn frá hinu víðfeðma norðri. Þátttakendur eru Gunnar Jónsson, Anders Sunna, Máret Ánne Sara, Inuuteq Storch, Nicholas Galanin, Dunya Zakharova, Marja Helander og Maureen Gruben.
Heimkynni listamannanna eru Sama-svæði Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, Ísland, Grænland, Síbería, Alaska og Norður-Kanada. Á sýningunni verður sjónum beint að því hvernig er að búa nærri heimskautsbaug, hvaða sameiginlega þætti og tengingar er að finna á meðal listamanna sem búa þetta norðarlega. Þessi fjölbreyttu menningarsvæði og samfélög, sem ná frá Alaska til Skandinavíu og Síberíu, eiga eitt sameiginlegt: Norðurheimskautið – norðrið.
Sýningin var til sýnis í Listasafni Akureyrar árið 2024 og var þá hluti af Listahátíð í Reykjavík og var styrkt af Safnaráði, Frame – Contemporary Art og Nordisk Kulturfond.
Sýningarstjórar: Daría Sól Andrews og Hlynur Hallsson.
Aðgengi að Hvelfingu sýningarsal er með tröppum að utan og með lyftu frá aðalhæð Norræna hússins. Að húsinu liggur rampur frá bílastæði og er sjálfvirkur hnappur á aðaldyrum hússins. Lyftan er strax á hægri hönd þegar komið er inn. Aðgengileg salerni eru á aðalhæð hússins.
Forsíðumynd: Marja-Helander, „Monchegorsk“ 2014.