
Drink & Draw Menningarnæturútgáfu!
16:00 - 17:00
Norræna húsið kynnir Drink & Draw sérstakri Menningarnæturútgáfu!
Við erum spennt að taka á móti sérstökum gesti, Sindra Sparkle Frey, sem mun leiða þetta fyrsta “Drink & Draw” í Norræna húsinu.
Kvöldið snýst um mistök, eitt öflugasta verkfærið í ferðalagi hvers listamanns. Þið getið búist við líflegri blöndu af myndskreytingum, uppistandi og frábærri skemmtun.
Þú þarft ekki að koma með neitt, allt efni er til staðar. Taktu bara nokkra vini með þér og vertu með okkur í hvetjandi klukkustund af sköpun. Athugið að FRÍTT er inn á viðburðinn!
Sindri „Sparkle“ Freyr er rithöfundur, grínisti, dragdrottning, grafískur hönnuður og allt of margt fleira.
Veitingastaðurinn okkar, Plantan Bistró, mun líka bjóða upp á frábær tilboð á drykkjum!
Aðgengi
Norræna húsið hefur ágætt aðgengi í flest rými hússins. Að húsinu liggur hjólastólarampur og aðgengileg salerni eru á aðalhæð hússins og eru öll salerni kynhlutlaus.