Dagur Norðurlandanna – Hjólbörur í norðri!


Elissa Auditorium
Aðgangur ókeypis

Nemendum er boðið í töfrandi ferðalag um norrænu löndin á Degi Norðurlandanna!

Hjólbörur í Norðri er lífleg norræn barnasýning og vinnustofa sem Lone Wernblad og Bergur Fonsdal Johannsen hafa skapað. Sýningin tekur börn með í ímyndað tónlistarfeðralag um Norðurlöndin – frá fjöllum og fjörðum til ísbjarna, sæhesta og hundasleða.

Börnin taka virkan þátt í gegnum söng, dans, hreyfingu og frásagnir. Upplifunin sameinar skapandi nám og leikræn ævintýri og er ætluð börnum á aldrinum 5–8 ára.

Viðburðurinn er ókeypis – ætlaður skólahópum (50 hámarksfjöldi) og skráning er þörf: hrafnhildur@nordichouse.is Sýning er 60 mínútur. Viðburðurinn fer fram á íslensku en getur einnig farið fram á dönsku.

Athugið – Sýningin klukkan 09:45 er fullbókuð en enn er laust á sýninguna klukkan 11:30. 

Viðurkennd gæði

Verkefnið hefur verið valið sem fyrirmyndarverkefni af Norræna menningarsjóðnum og stutt af A.P. Møller sjóðnum. Áhorfendur og fagfólk leggja áherslu á þverfagleika verkefnisins sem er blanda af tónlist, frásögnum og skapandi starfsemi sem örvar öll skilningarvit:

„Áhorfendur svifu hátt yfir fjöllin, köfuðu niður að krabba á sjávarbotni og óku á hundasleðum yfir ísinn.“

– Louise Jul, Nordatlantisk Hus, Óðinsvéum

„Snilldarleg og vel úthugsuð hugmynd fyrir börn sem örvar öll skilningarvit.“

– Kennari, Børnehuset ved Skoven, Ballerup

 

„Viðburðurinn var alveg uppseldur. Bergur og Lone heilluðu bæði börn og foreldra.“

– Fróði T. Vestergaard, Norræna húsið, Þórshöfn

Aðgengisupplýsingar má nálgast hér.