DAGUR NORÐURLANDA 2023


16:00 - 18:15
Salur
Aðgangur ókeypis

Dagur Norðurlanda:
Norræn samstaða og máttur menningar á stríðstímum

Norræna húsið, Norræna félagið og Norræna ráðherranefndin bjóða ykkur hjartanlega velkomin á Dag Norðurlanda, en hann markar undirskrift Helsinki-sáttmálans sem leggur grunn að samstarfi norrænna þjóða. Dagskráin í ár hverfist um frið og norræna samstöðu á stríðstímum og samanstendur af pallborðsumræðum, ræðum og menningarlegum uppákomum. Viðburðurinn verður einnig aðgengilegur í streymi.

DAGSKRÁ:

  • Opnunarávörp – Guðmundur Ingi Guðbrandsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, og Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins.

 

  • Pallborðsumræður – Konur í stríði: hlutverk menningar og lista á stríðstímum. Nánari lýsing fyrir neðan.

 

  • Ávörp – Bryndís Haraldsdóttir, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, og Pär Ahlberger, sendiherra Svíþjóðar.

 

  • Upplestur – Guðni Elísson fjallar um og les upp úr bók sinni Ljósgildran sem er tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

 

  • Erindi – Helgi Þorsteinsson, sagnfræðingur og stjórnarmaður í Norræna félaginu: Stríð og friður á Norðurlöndum

 

  • Lokaorð – Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins

 

  • Tónlist – Bragi Bergsson, þátttakandi í Söngvakeppninni 2023, flytur tvö lög

 

  • Norræn móttaka – vín og léttar veitingar í boði

 

Konur í stríði – hlutverk menningar og lista á stríðstímum:

Af hverju að hlusta á tónlist, fara í leikhús, skrifa ljóð eða njóta myndlistar þegar stríðið geysar og fólk er að deyja? Ljóð munu ekki stöðva flugskeyti. Leikhús mun ekki binda enda á þjáningar.

En menning er ekki áhrifalaus.

Í gegnum listina getum við skapað tengingar milli fortíðar og framtíðar, hins óhlutbundna og hins áþreifanlega, lært að skilja og lært að efast. Við greinum betur á milli hins góða og slæma á tímum baráttu og hörmunga. Menning og listir hafa vald til þess að sýna stríð á sínum eigin forsendum, að miðla boðskapnum rakleiðis og handan við hefðbundin mannleg samskipti og áróður.

Við kynnumst fjórum konum sem starfa í lista- og menningargeiranum, en þær eru Valerie Ósk Elenudóttir, íslensk-úkraínsk leikkona, Natasha S, íslensk- rússneskt ljóðskáld sem hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í fyrra, Kateryna Mysechko, úkraínskur fiðluleikari í Synfóníuhljómsveit Íslands  og Olena Steptytska, úkraínsk listakona og skipulagshönnuður.

Við munum ræða um hlutverk menningar á stríðstímum, mátt listarinnar til að koma frásögnum til skila og fræða fólk, samhliða því að veita huggun og grið á tímum verstu hörmunga manna, eins og stríðsins í Úkraínu.

Olga Jóhannesson stýrir umræðunum.