Absenced


Anddyri
Aðgangur ókeypis

THE MORE YOU SILENCE PEOPLE, THE LOUDER THEY BECOME

Þann 15 – 25. maí stóð yfir sýningin ABSENCED á Borgarbókasafni Tryggvagötu – þar sem mátti sjá prentara framleiða og standa fyrir verkum listamanna sem hefur verið slaufað, ritstýrt, hótað eða refsað í Evrópu fyrir að opinbera stuðning sinn við Palestínu. Sýningarstjóri var listamaðurinn og aðgerðarsinninn Khaled Barakeh. Sýningin var áður sýnd í heild sinni á Borgarbókasafninu í Malmö árið 2024.

Nú má sjá lítinn anga sýningarinnar í Norræna húsinu, á veggnum við hlið bókasafnsins. Ljósmyndir, texta og bókverkið Absenced.

ABSENCED er bókaröð og listsýning þar sem prentarar framleiða og tákna verk listamanna sem búa á mismunandi landfræðilegum, félagslegum og stjórnmálalegum stöðum, við mismunandi veruleika og aðstæður. Öllum þátttakendum var slaufað, þeir ritskoðaðir, hótað, refsað eða bældir niður fyrir og eftir 7. október.

Þátttakendur og listamenn eru: Adam Broomberg (listamaður), Anti Story (nafnlaust listaverkefni), Bastardilla (götulistamaður), Daniela Ortiz (listamaður), Ghayath Almadhoun (ljóðskáld), Halima Aziz (listamaður, Hamja Ahsan (listamaður, rithöfundur og sýningarstjóri), John Keane (prófessor), Johanna Tagada Hoffbeck (listamaður og menningarstarfsmaður), Liad Hussein Kantorowicz (listamaður, tónlistarmaður og feminískur aktívísti), Phoebe Walton (arkítekt og hönnuður), Raphaël Malik (ljósmyndari), ruangrupa (listamannarekin samtök og sýningarstjórar), Shahidul Alam (ljósmyndari), Taring Padi (samtök listamanna), and Tinne Zenner (listamaður og kvikmyndaleikstjóri).

Sýningarstjóri er Khaled Barakeh (listamaður, aktívisti og sýningarstjóri).

Hver þátttakandi vann um þrjátíu venjuleg A4 blöð fyrir verkefnið. Þau notuðu teikningar, texta, skissur, klippimyndir, ljósmyndir eða hvaða listform sem var sem miðlaði einstakri sýn og upplifun þeirra. Á bókasafninu voru prentarar festir á efri hæð og framlög þátttakenda voru prentuð stöðugt á sýningartímanum. Prentuðu blöðin/listaverkin féllu að ofan og líktu eftir aðferð sem ísraelski herinn notar til að hræða eða „vara“ Palestínumenn við.

Með uppgangi popúlisma standa listamenn frammi fyrir fordæmalausri ritskoðun, lagalegum afleiðingum og ógn við eigið öryggi fyrir það eitt að tjá skoðanir sínar eða rannsaka umdeild viðfangsefni. Það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að leggjast á eitt til að skapa opið, aðgengilegt og styðjandi umhverfi þar sem menningarleg og listræn tjáning getur blómstrað í öryggi. ABSENCED bregst við þessum áskorunum með því að skapa vettvang þar sem listafólk getur tjáð sig frjálst og staðið vörð um rétt sinn til tjáningarfrelsis.