Fimm rétta upplifunarkvöldverður með te‑pörun// DesignMarch
19:30
Sigmundur P.F. & Plantan bístró bjóða upp á 5 rétta upplifunarkvöldverð með te-pörun miðvikudagskvöldið 6. maí kl. 19:30, í tilefni af Hönnunarmars.
Matseðillinn er plöntumiðaður og unninn út frá upplifun og tengingu við náttúruna. Hver réttur er paraður við japanskt te frá Testund sem dregur fram bragð, áferð og styrkir heildarupplifun kvöldsins.
Á sama tíma verða verk eftir Sigmund til sýnis á Plöntunni, þar sem unnið er með náttúruleg litarefni og textíl. Sigmundur er listamaður og hönnuður sem vinnur með áherslu á efni, ferli og tengingu við náttúruna. Hann stundaði framhaldsnám í hönnun við Kyoto Seika University í Japan og er stofnandi Testund, sem sérhæfir sig í hágæða japönsku tei.
Verð: 15.990 ISK á mann.
Athugið að te-pörunin inniheldur koffín sem gæti lengt kvöldið fyrir gestina.
Smelltu hér til að bóka borð.
Upplýsingar um aðgengi má finna með því að smella hér.