
Sequences XII: Pása – Opnun sýningarinnar, Setminni
17:00
Velkomin á opnun sýningarinnar Setminni í Norræna húsinu, þann 11. Október frá 17:00-19:00!
Setminni leiðir saman listamenn sem hver og einn vinnur með tímaskynjun handan hins mannlega kvarða.
Á sýningunni má sjá verk eftir Ernu Skúladóttur, Pétur Thomsen, Julie Sjöfn Gasiglia, Rhodu Ting & Mikkel Bojesen, Bryndísi Snæbjörnsdóttur and Mark Wilson, Rögnu Róbertsdóttur, Thomas Pausz og Wauhaus.
Sýningin fjallar um jökulhreyfingar, sveppanet, jarðfræðilega myndun og önnur vistkerfi sem hreyfast með ólíkum takti. Sýningin hvetur okkur til að hægja á okkur og þá birtist okkur marglaga, hringrásar kenndur tími náttúrunnar. Með nákvæmari athugun staðsetja verkin hæglæti sem form umhyggju, þar sem mannlegir taktar stillast af við flókna tímaskala jarðarinnar.
Heildardagskrá Sequences má finna á www.sequences.is
Sequences – real time art festival er alþjóðlegur myndlistartvíæringur, sem haldinn er í Reykjavík. Að baki Sequences standa Kling & Bang, Nýlistasafnið og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar auk fjölda listamanna.
