Norsk sögustund
13:00
Norsk sögustund
Norsk sögustund laugardaginn 6. febrúar kl. 13:00, í bókasafni Norræna hússins. Við syngjum, lesum og leikum okkur saman á norsku. Öll börn sem skilja norsku eru velkomin. Matja Steen leiðir sögustundina. Næstu sögustundir verða 5. mars, 2. apríl og 7. maí.
Minnum á bókamarkaðinn sem er í Norræna húsinu til sunnudagsins 7. febrúar. Opið frá 12-17 um helgina. Mikið af barna- og unglingabókum á norsku og einnig bækur fyrir fullorðna. Barnabækur kosta frá 100 kr. – 300 kr.