Leiðsagnir

Norræna húsið: Alhliða listaverk
Stafræn leiðsögn um sögu, menningu og arkitektúr hússins

Handrit: Guðni Tómasson
Íslensk talsetning: Bjartmar Þórðarson
kvikmyndataka og klipping: Blair Alexander Massie
Leikstjórn: Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir
Framleitt af Norræna húsinu í Reykjavík

Hljóðleiðsögn um Norræna húsið

Hljóðleiðsögn Norræna hússins er fræðandi og ánægjulegt gagnvirkt ferðalag um arkitektúr og sögu hússins. Hljóðleiðsögnin sem samin er af listfræðingnum Guðna Tómassyni gefur hlustendum nýtt sjónarhorn og betri innsýn í starfsemi og tilgang hússins ásamt því að vera einstaklega góð skemmtun.  Hljóðleiðsögnin tekur um 20 mínútur og er einnig til á ensku, finnsku og dönsku.

Vinsamlegast notið spilarann hér fyrir neðan til að hlusta eða fáið tæki lánuð í móttökunni, ykkur að kostnaðarlausu.