14 norrænar skáldsögur, frásagnir, esseyjur og ljóðabækur eru tilnefndar til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023. Þessi mögnuðu verk koma frá öllum norrænu löndunum og málsvæðunum. Tilkynnt verður um verðlaunahafann þann 31. október í Osló.
Öll verkin sem tilnefnd eru í ár má lesa sem nokkurs konar óð til lífsins – þessa harmræna, kynngimagnaða og undursamlega lífs sem vindur fram á milli einstaklinga, samfélags og náttúru. Mörg þeirra fást við hinar mörgu birtingarmyndir ofbeldis, ýmist með sögulegum, bókmenntalegum eða raunveruleikatengdum vísunum í áföll og niðurbrot.
Í hinum tilnefndu verkum má einnig greina einstakt næmi fyrir tungumálinu, margþættar frásagnir sem fara þvert á bókmenntagreinar og áhuga á helgisiðum.
Hér eru verkin sem tilnefnd eru til bókmenntaverðlaunanna árið 2023,
smellið á titlana til að lesa meira:
Danmörk
Finnland
Færeyjar
Grænland
Ísland
Noregur
Samíska málsvæðið
Svíþjóð
Álandseyjar
Dómnefndir skipaðar fulltrúum frá löndunum hafa tilnefnt verk til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023.
Verðlaunahafinn kynntur 31. október
Handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2023 verður kynntur á verðlaunaafhendingu þann 31. október í Osló í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Verðlaunahafinn hlýtur verðlaunagripinn Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur.
Um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt síðan 1962 fyrir fagurbókmenntaverk sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Það getur verið skáldsaga, leikverk, ljóðabók, smásagna- eða ritgerðasafn sem uppfyllir strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.
Skrifstofa bókmenntaverðlaunanna er í Norræna húsinu í Reykjavík, skrifstofustjóri er Sofie Hermansen Eriksdatter.
Markmið hinna fimm verðlauna Norðurlandaráðs er að auka áhuga á norrænu menningarsamfélagi og samstarfi um umhverfismál, svo og að vekja athygli á verkefnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverfismála.