Norræna húsið hefur þegið rausnarlega gjöf frá L‑G Nordström stofnuninni, skúlptúr eftir listamanninn Lars-Gunnar Nordström. Gjöfin styrkir hlutverk Norræna hússins í að efla norræna myndlist og styðja við listsköpun og samstarf á Norðurlöndum.
Um listamanninn, Lars‑Gunnar Nordström
Verk finnska listamannsins Lars‑Gunnar Nordström, oft nefndur Nubben, spanna málverk, skúlptúra, grafík og listaverk í almannarými. Ferill hans náði frá lokum fjórða áratugarins og fram á fyrstu ár 21. aldar og festi hann í sessi sem áhrifamikinn fulltrúa abstraktlistar. Nordström heillaðist af möguleikum lita, línu og forms. Undir áhrifum frá konkretisma og konstrúktívisma leit hann á abstraktlist sem skýrt og uppbyggilegt form, mótað af hugmyndum fremur en eftirlíkingu. Fyrir Nordström endurspegluðu form og samsetningar abstraktlistar hraða og þróun hins nútímalega heims.
Um L‑G Nordström stofnunina
Frá árinu 2000 hefur L‑G Nordström stofnunin stutt og skipulagt sýningar í samstarfi við gallerí og söfn bæði í Finnlandi og erlendis. Markmið hennar er að efla, varðveita og þróa arfleifð málverks, skúlptúrs og annarra listforma innan konkretískrar og sérstaklega konstrúktívískrar hefðar. Stofnunin styður rannsóknir og útgáfur um líf og list Nordströms og lætur einnig vinna ný verk sem halda hefð konkretismans á lofti.
Artotek safnið
Artotek Norræna hússins er útlánasafn norrænnar grafíkur og ljósmynda. Það var stofnað árið 1971 með gjöf á 200 grafíkverkum frá Norræna grafíksambandinu og myndaði hún grunn safnsins. Árið 1976 opnaði Artotekið fyrir almenning sem fyrsta útlánasafn sinnar tegundar, þar sem gestir gátu fengið verk norrænna listamanna að láni líkt og bækur á bókasafni. Safnið hefur vaxið jafnt og þétt og inniheldur nú yfir 600 verk frá öllum Norðurlöndum, þar á meðal steinprent eftir L‑G Nordström.
Til sýnis í Ilona, næðisrými Norræna hússins
Skúlptúrinn er nú til sýnis í næðisrými Norræna hússins, þar sem hann er sýndur samhliða steinprenti L‑G Nordström úr Artotek safninu. Saman bjóða verkin gestum upp á rólega og íhugula upplifun af einstökum listheimi Nordströms. Uppsetningin er opin öllum gestum á reglulegum opnunartímum Norræna hússins.