A picture in the bacground of a meeting hall, in red the letters: FORCE, Voices In Public Art: Mapping Freedom Of Speech And Expression In The Nordic Region

Norræna húsið í Reykjavík gengur til liðs við FORCE

Norræna húsið í Reykjavík gengur til liðs við FORCE, norrænan samstarfsvettvang sem vinnur að því að efla listfrelsi og styðja við listamenn.

Það er okkur ánægja að tilkynna að Norræna húsið er nú samstarfsaðili FORCE (Freedom, Open dialogue, Resilience, Collaboration, and Empowerment). FORCE er norrænt framtak, stofnað af Mesén, sem miðar að því að styrkja hlutverk listar í lýðræðislegri umræðu og styðja listamenn, sérstaklega þá sem starfa í almenningsrýmum og verða í auknum mæli fyrir pólitískum, félagslegum og efnahagslegum þrýstingi.

Á sama tíma og umræður um menningu verða sífellt eldfimari á Norðurlöndum sameinar FORCE stofnanir, fagfólk og stefnumótendur til að greina sameiginlegar áskoranir, þróa aðferðir til að vernda listfrelsi og skapa varanlegann vettvang til samstarfs og þekkingarmiðlunar. Með ráðstefnum í Osló, Helsinki og Reykjavík, ásamt reglulegum stafrænum fundum, stuðlar netið að faglegri þekkingarmiðlun og styrkingu samstarfs þvert á Norðurlönd.

Með þátttöku í FORCE styrkir Norræna húsið áherslur sínar á listfrelsi, listsköpun og verkefni í almenningsrýmum, auk þess að efla samstarf við norrænar stofnanir sem vinna að sambærilegum markmiðum. Við hlökkum til að taka þátt í þessu mikilvæga starfi og styðja við öflugt, fjölbreytt og lýðræðislegt menningarsamfélag.

Lestu meira um FORCE á heimasíðu þeirra –smelltu hér.

The three locations of the conference. Oslo, Norway, Helsinki, FInland, Reykjavik Iceland.

Taktu þátt í fyrstu ráðstefnu FORCE þann 17 apríl í Osló.
Voices in Public Art: Mapping Freedom of Speech and Expression in the Nordic Region

Lestu meira um ráðstefnuna – smelltu hér.