Logo for the NEMO fund.

NEMO – Nýr styrkur fyrir listrænt samstarf í Norður Evrópu

NÝR STYRKUR FYRIR LISTAMENN OG MENNINGARSTARFSMENN!


NEMO
mun veita ferðastyrki og efla listrænt samstarf í Norður – Evrópu. Sjóðurinn er fjármagnaður af Norræna menningarsjóðnum og listastyrktarstofnunum Írlands, Englands, Norður-Írlands, Skotlands og Wales. Markmið verkefnisins er að efla alþjóðlegt samstarf, styrkja menningartengsl um allt svæðið og styðja fleiri listamenn og aðra sem starfa innann menningar að stofna til samstarfs og starfa á alþjóðavettvangi.

Styrkurinn er ætlaður einstaklingum – listamönnum og menningarstarfsfólki sem eru á fyrstu stigum ferils síns – þessi áhersla endurspeglar þá viðurkenningu allra aðila sjóðsins að þessi hópur hefur sérstaka þörf fyrir stuðning og aukin tækifæri.

Frekari upplýsingar um NEMO má nálgast hér á heimasíðu Nordisk Kulturfond.

Opið er fyrir umsóknir:

18. ágúst – 15. september 2025, kl. 23:59 (CEST)

Athugið að upplýsingafundur verður haldinn á fimmtudag, smellið hér til að skrá sig til þátttöku.