Leshringur Norræna hússins
Ert þú forvitin/n um og hefur áhuga á norrænum bókmenntum en veist ekki alveg hvar þú ættir að byrja að lesa?
Í haust mun leshringur Norræna hússins halda áfram í fallegasta bókasafni borgarinnar. Leshringurinn mun hittast fjórum sinnum og mun Sunna Dís Másdóttir, bókmenntagagnrýnandi og fulltrúi Íslands í nefnd um Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, stýra hópnum eins og áður.
Í haust munum við meðal annars lesa Ett system så magnifikt att det bländar eftir Amanda Svensson, HHV, FRSHWN – dødsknaldet I Amazonas eftir Hanne Højgaard Viemose og ljóðabóka Yayha Hassans Yayha Hassan 2.
Við lesum á skandinavísku og ræðum bókmenntirnar á “blandinavísku.” Við hittumst í Bókasafninu og Norræna húsið býður upp á te og kaffi.
Bækurnar sem lesnar verða eru aðgengilegar í Bókasafni Norræna hússins þar sem hægt er að panta þær og fá afhentar með framvísun bókasafnskorts. Áttu kannski ekki bókasafnskort? Engar áhyggjur því kortið er innifalið með þátttöku í leshringnum.
Þáttaka í leshringnum er endurgjaldslaus en ekki komast allir að sem vilja og því er skráning nauðsynleg. Því miður eru öll pláss haustsins bókuð en ef þú hefur áhuga á að vera með í leshring þá endilega sendu póst á bibliotek@nordichouse.is.