Tilnefndu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025.

Þema ársins er þáttur borgarasamfélagsins í umhverfismálum – verkefni sem virkjar almenning í grænum umskiptum. Almenningi er boðið að senda inn tillögur að tilnefningum. Verðlaunin nema 300.000 danskra króna.

Reglur um tilnefningar

 Umhverfisverðlaunin eru veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem gengið hefur á undan með góðu fordæmi með því að samþætta umhverfissjónarmið starfseminni eða hefur á annan hátt unnið mikilsvert starf í þágu umhverfisins. Verðlaunahafinn á að vera norrænn og starfa á Norðurlöndum og/eða í tengslum við aðila utan Norðurlanda.

 

Dómnefndin mun einnig líta til þess að frumkvæðið sé inngildandi og nýstárlegt, geti verið öðrum hvatning og að hægt sé að skala það upp svo vinna megi að því á alþjóðavísu.

Þema ársins

Með þema ársins vill dómnefndin vekja athygli á nauðsyn þess að allir aðilar í samfélaginu taki þátt í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, sinni hinum grænu umskiptum og taki nauðsynleg skref til að verja, viðhalda og endurheimta vistkerfi.

„Virk þátttaka borgarasamfélagsins er forsenda grænna umskipta og skiptir sköpum til að við getum gert þær úrbætur sem eru nauðsynlegar á náttúru okkar og umhverfi,“ segir Anna Jöborn, formaður verðlaunanefndar umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs.

Hér má lesa nánar um þema ársins:

Þáttur borgarasamfélagsins í umhverfismálum – Verkefni sem virkjar almenning í grænum umskiptum 

Án þátttöku almennings í náttúru- og umhverfismálum yrði erfitt að búa í haginn fyrir sjálfbæra framtíð. Allir aðilar í samfélaginu þurfa að taka þátt í grænum umskiptum, í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og taka nauðsynleg skref til að verja, viðhalda og endurheimta vistkerfi.

Þegar samfélagið stendur saman og vinnur að sameiginlegum markmiðum getum við náð umtalsverðum árangri á stuttum tíma. Og tíminn skiptir öllu hvað varðar umhverfis- og náttúruvernd og grænu umskiptin. Við þurfum að ná árangri og það þarf að gerast hratt. Það gerist aðeins með virku og öflugu borgarasamfélagi.

Þátttaka almennings getur verið af ýmsu tagi, t.d. þátttaka í félagasamtökum eða einstaklingsframtak sem stuðlar að sjálfbærni og þekkingu um umhverfismál. Breyttar venjur geta einnig skipt sköpum fyrir þróun í átt að sjálfbærri framtíð.

Til eru fjölmörg dæmi um að þekking almennings nýtist til vísindarannsókna, svo kölluð lýðvísindi. Sem dæmi um slíkt má nefna athuganir fuglaáhugafólks eða baráttuna gegn ágengum tegundum. Þessi framtök eru ekki aðeins mikilvæg fyrir gagnasöfnun, en stuðla einnig að aukinni þekkingu og þátttöku almennings. Kröfur: Verðlaunin verða veitt til verkefnis sem virkjar almenning í hinum grænu umskiptum, sem er inngildandi og nýskapandi og sem skapað hefur stór áhrif í náttúru- og umhverfisvernd. Þar að auki skal vera hægt að skala verkefnið upp svo vinna megi að því á alþjóðavísu.

Öllum er frjálst að senda inn tillögur

 Ferlið er opið og er öllum frjálst að senda inn tillögur að tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs.

Frestur til að senda inn tillögur er 30. apríl 2025

Sendu inn tillögu að tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025 hér

Verðlaunin og afhending þeirra

Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs verða kynntar í júní. Verðlaunaafhendingin fer fram á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í október. Verðlaunahafinn hlýtur 300.000 danskar krónur.