Langar þig að byggja upp dýrmæta reynslu í fjármálum innan lifandi menningarstofnunar með sterka norræna og alþjóðlega tengingu? Norræna húsið í Reykjavík óskar eftir metnaðarfullum og áreiðanlegum bókara/bókhaldsfulltrúa í 50% starf sem hefur áhuga á að vaxa í starfi og taka þátt í fjölbreyttu menningar- og samstarfsumhverfi Norðurlandanna.
Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem vilja sameina faglega færni í bókhaldi við áhuga á menningu, skapandi starfsemi og alþjóðlegu samstarfi — hvort sem þú ert snemma á starfsferli eða leitar að traustu starfi samhliða námi eða öðrum verkefnum.
Starfið er fjölbreytt og veitir góða innsýn í rekstur menningarstofnunar. Hér færðu tækifæri til að þróa færni þína, læra inn á norrænt samstarfsumhverfi og taka þátt í starfsemi sem styður við menningu, listir og samtal yfir landamæri.
- Bókun reikninga og almenna bókhaldsvinnu
- Launabókhald og launavinnslu
- Reglubundnar afstemmingar
- Aðstoð við uppgjör styrkumsókna og verkefna
- Önnur tilfallandi verkefni á sviði fjármála og reksturs
- Menntun sem nýtist í starfi, að lágmarki vera vottaður og viðurkenndur bókari
- Reynsla af sambærilegu starfi (nýleg eða í uppbyggingu er einnig metin)
- Góð talnaglöggni og nákvæm vinnubrögð
- Reynsla af DK bókhaldskerfinu er kostur
- Góð kunnátta í íslensku og einu skandinavísku tungumáli (dönsku, sænsku eða norsku)
- Hreint sakavottorð
Persónulegir eiginleikar
- Skipulögð/lagður og sjálfstæð/ur, en óhrædd/ur við að spyrja og læra
- Áreiðanleg/ur og með góða þjónustulund
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Sýnir áhuga á menningarstarfsemi og starfsemi Norræna hússins
- Niðurgreiddur hádegismatur hjá veitingastað hússins Plantan bistró
- Ferðastyrkur fyrir bíllausan lífstíl
- Íþróttastyrkur
- Símastyrkur
- Sveigjanlegur vinnutími