Watercolorpainting, colorful dots and red lineas, blue area reminding of a glacier.

Barnamenningarhátíð í Norræna húsinu!

Við höldum uppá Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2026, dagana 21 – 26 apríl. Í boði verður meðal annars sýning á verkum grunnskólabarna, fjölskylduleiðsögn og smiðjur af ýmsum toga. Ókeypis er inná sýningar og allar smiðjur.

Málað með jökulleir, smiðja fyrir alla fjölskylduna!
25.04

Myndlistarkonan Íris María Leifsdóttir verður með smiðju þar sem hægt er að prófa að mála með jökulleir. Hún býður uppá leir frá Svínafellsjökli, Breiðamerkurjökli og Sólheimajökli sem má mála með á vatnslitapappír. Einnig verða notaðir vatnslitir.
Við mælum með að skoða sýninguna Gárur: Umbreytingar á norðurslóðum fyrir innblástur áður en hafist er  handa við að mála jökulmyndir með jöklaleir.

Fjölskylduleiðsöng um sýninguna Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum
26.04

Taktu þátt í rólegri, klukkustundarlangri göngu um sýninguna með Ásthildi Jónsdóttur sýningarstjóra; leiðsögnin fer fram á íslensku. Við skoðum saman listaverk og vísindarannsóknir um norðurslóðir, snjó, ís og jökla og þær breytingar sem eiga sér stað á þessum slóðum vegna veðurfarsbreytinga. Um er að ræða leiðsögn sem er sérstaklega aðlöguð að börnum.

Börn geta leikið og prófað ýmis verkefni á meðan á leiðsögninni stendur, og fjölskyldum er svo velkomið að dvelja áfram og taka þátt í fleiri smiðjum í barnabókasafninu, að leiðsögn lokinni.

Innblásin af norðri
21.04-26.04

Á sýningunni Innblásin af norðri verða sýnd textílverk, klippi- og vídeóverk og málverk nemenda úr Landakotsskóla, Melaskóla og Hagaskóla. Verkin eru öll innblásin af sýningunni Gárur: Umbreytingar á norðurslóðum sem nú stendur yfir í Norræna hússinu. Verkin eru unnin undir handleiðslu listamanna auk list- og verkgreinakennurum skólanna.  Sýningin verður í anddyri við aðalinngang og í barnabókasafnin Norræna hússins daganna sem að hátíðin fer fram og opin á opnunartímum hússins 10-17:00, þriðjudaga til sunnudaga.


Verið velkomin!