photo of a woman standing by a window and looking out. She has glasses and wears blue.

Afhending alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness


17:00

Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness verða afhent í Norræna húsinu á fimmtudaginn 10. september næstkomandi.

 Verðlaunin eru veitt annað hvert ár alþjóðlega þekktum rithöfundi fyrir að eiga þátt í endurnýjun frásagnarlistarinnar en þannig hljómaði einmitt rökstuðningur sænsku Akademíunnar þegar Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955.

 Verðlaununum er einnig ætlað að halda á lofti nafni Halldórs Laxness á alþjóðlegum vettvangi.

Að þeim standa Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Íslandsstofa, Gljúfrasteinn og Forlagið, útgefandi Halldórs Laxness á Íslandi. Norræna húsið er samstarfsaðili Alþjóðlegu bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2026.

 Í ár hlýtur verðlaunin pólski rithöfundurinn Olga Tokarczuk. Hún mun veita þeim viðtöku fimmtudaginn 10. september og hefst dagskráin kl. 17.00. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mun afhenda Tokarczuk verðlaunin, sem eru peningaverðlaun að upphæð 15.000 evrum með verðlaunapeningi. Halla Oddný Magnúsdóttir og Halldór Guðmundsson munu svo leiða samræður við Tokarczuk á sviði eftir afhendinguna.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn meðan húsrúm leyfir.

Upplýsingar um aðgengi í Norræna húsinu má finna með því að smella hér