Stelkur LIVE: Fjölþjóðleg smásagnahátíð


14:00-17:00
Elissa Auditorium
Aðgangur ókeypis

Bókmenntatímaritið Stelkur efnir til smásagnahátíðar þar sem rithöfundar frá fimm löndum koma fram og lesa sögur úr nýjasta tölublaðinu sem kemur út á sama tíma.

Um er að ræða sérstaka tvöfalda hátíðarútgáfu vefritsins á þriggja ára afmælinu. Höfundar frá Finnlandi, Færeyjum, Írlandi, Litháen og Íslandi munu flytja sögurnar í heild sinni, svo áheyrendum gefst kostur á að sökkva sér í hvern söguheim og upplifa til fulls.

Höfundar lesa á frummálinu en íslenskri þýðingu verður varpað upp á skjá.

DAGSKRÁ LAUGARDAGS – 5 september:
14:00-17:00

Guðrún Eva Mínervudóttir (IS)
Guðrún Eva Mínervudóttir er landskunn fyrir skáldsögur sínar, en einnig er hún ein af okkar færustu smásagnahöfundum, en smásagnasafnið Ástin, Texas hlaut fjöruverðlaunin 2019.

Sheila Armstrong (IE)
Sheila Armstrong er höfundur frá norðvestur Írlandi, og hafa bækur hennar og sögur verið þýddar á tíu tungumál, og hlotið fjölda tilnefninga. Hún sendi nýverið frá sér smásagnasafnið How to Gut a Fish.

Tapio Koivukari (FI)
Tapio Koivukari er Íslendingum góðum kunnur, enda hafa margar bækur hans verið þýddar yfir á ástkæra ylhýra. Hann er einn af virtustu rithöfundum Finnlands, og t.a.m. hlaut Predikarastelpan Runeberg-verðlaunin.

DAGSKRÁ SUNNUDAGS – 6 september:
14:00-17:00

Einar Már Guðmundsson (IS)
Einar Már Guðmundsson er einn af okkar mest lesnu höfundum, hér á landi sem ytra, og hlaut m.a. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Hann hefur gefið út tvö glimrandi smásagnasöfn gegnum árin, og snýr sér nú aftur að því formi.

Maggie Armstrong (IE)
Maggie Armstrong er Dyflinnarbúi. Hún starfaði lengi sem blaðamaður áður en hún sneri sér að skáldskapnum, og vakti mikla athygli fyrir smásagnasafnið Old Romantics, sem var meðal annars tilnefnt til Írsku bókmenntaverðlaunanna sem besta frumraunin.

Alvydas Šlepikas (LT)
Alvydas Šlepikas er einn af þekktustu rithöfundum Litháens, og hefur skáldsaga hans Mano vardas – Marytė verið þýdd á fjölda tungumála. Hann er þó ekki einhamur, heldur skrifar hann jafnt fyrir svið og skjá, sem og blaðsíðuna.

Vónbjørt Vang (FO)
Vónbjørt Vang hefur margoft komið til Íslands og eignast hér dyggan aðdáendahóp, og ekki bara hér, því hún hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra. Hún kemur hingað með nýja smásögu í farteskinu.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.