Grafíkvinnustofu um jarðverur í Vatnsmýrinni!


12:30-15:00
Gróðurhús
Aðgangur ókeypis

Öll velkomin á grafíkvinnustofu um jarðverur í Vatnsmýrinni!

Frá kl. 12:30 til 15:00 verður gróðurhúsið í Norræna húsinu opið fyrir skemmtilega og skapandi grafíkvinnustofu. Innblásin af sýningunni Membrane: Myth and Fictions of Soil, sem nú stendur yfir í Norræna húsinu og er opin gestum allan daginn. Listakonan Estelle Pollaert leiða þátttakendur í verklegri vinnustofu þar sem unnið verður með einþrykksgrafík (monotype).

Með einþrykksaðferð munu þátttakendur skapa myndir af verum sem búa í jarðveginum. Hvert verk verður síðan prentað með grafíkpressu, þannig að allir geta tekið með sér nokkur eintök af eigin hönnun.

Þátttakendur eru hvattir til að skilja eftir eitt prent sem verður hluti af sameiginlegri uppsetningu í gróðurhúsinu. Að vinnustofunni lokinni verða prentin saumuð saman í litla bók sem verður hluti af sýningunni.

Leiðsögn um sýninguna Membrane: Myth and Fictions of Soil hefst kl. 13:00 í Hvelfingu fyrir þau sem vilja sækja innblástur áður en þau taka þátt í vinnustofunni.

Um leiðbeinandann: Estelle Pollaert er frönsk, þverfagleg listakona með aðsetur í Reykjavík. Verk hennar eru leikandi, litrík og gleðja okkur í hvert sinn sem við mætum þeim. Estelle hefur mikla reynslu af því að leiða skapandi vinnustofur fyrir börn á ensku, frönsku og íslensku.

Nánari upplýsingar um aðgengi í Norræna húsinu má finna hér.