Eftir frábært samstarf kveður Plantan Bistró Norræna húsið og heldur áfram að taka á móti sínum góðu gestum á Njálsgötu. Við erum innilega þakklát fyrir þeirra nærveru, hlýju og fagmennsku hér í húsinu og óskum þeim góðs gengis. Lokadagur Plöntunar hér í Norræna húsinu er 31 júlí og við hvetjum gesti til að nýta tímann vel og njóta.
Nýr kafli hefst og Norræna húsið leitar nú að metnaðarfullum og traustum samstarfsaðila til að reka veitingastarfsemi í húsinu og sjá um veitingar í viðburðum. Norræna Húsið er lifandi menningarvettvangur sem leggur mikla áherslu á sjálfbærni og inngildingu og er þetta kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að skapa hlýlegt, skapandi og spennandi rými fyrir gesti í samvinnu við starfsfólk Norræna hússins.
Upplýsingar:
Veitingastaðurinn skal vera opinn á opnunartíma Norræna hússins, þriðjudaga til sunnudaga, kl. 10:00–17:00, og ætti að bjóða upp á kaffiveitingar og hádegisverð sem hentar öllum gestum, þar á meðal fjölskyldum með börn. Hægt er að fá áfengisleyfi.
Einkaréttindi fyrir fyrirtækið
• Einkaréttur á veitingum fyrir alla viðburði í Norræna húsinu
• Fullbúið fageldhús
• Geymsla og kæling í kjallara
• Borðbúnaður
• Samstarfsmöguleikar um menningardagskrá
Sjálfbærni og aðgengi
Norræna húsið leggur mikla áherslu á:
• Aðgengi og inngildingu
• Fjölskylduvæna aðstöðu
• Umhverfisábyrgð
Við erum nú að sækja um Svanmerkið sem sjálfbær ráðstefnustaður, sem gerir umhverfisvæna veitingar að nauðsynlegum hluta af framtíðarstarfsemi í húsinu.
Viðskiptavinahópur
Með um það bil 80.000 gesti árlega býður Norræna húsið upp á stöðugan straum af hugsanlegum kaffihúsgestum. Veitingastaðurinn þjónar einnig áhorfendum sem sækja:
• Menningarviðburði svo sem tónleika
• Ráðstefnur
• Fundi
• Hátíðir
• Menningardagskrá
• Sýningar
• Fræðsludagskrá
Kjörinn rekstraraðili
Þetta tækifæri hentar vel reyndum kaffihúsa- eða veitingastaðareiganda með ástríðu fyrir:
• Sjálfbærum og hollum mat
• Frábæru kaffi
• Veisluþjónustu
• Gestrisni í menningarlegu umhverfi
• Að skapa aðlaðandi fundarstað
Samsetning daglegrar umferðar gesta, einkaréttar á veitingum, faglegri aðstöðu og nánu samstarfi við eina virtustu menningarstofnun landsins býður upp á sterkan grunn til að byggja upp einstakt og sjálfbært veitingafyrirtæki.
Fyrir frekari upplýsingar, hafið samband við johann@nordichouse.is og sabina@nordichouse.is.